Fréttir

true

Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar voru afhentar í gær

Árlegar umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar voru afhentar í gær fyrir snyrtimennsku við hús og lóðir í sveitarfélaginu auk þess sem hvatningarverðlaun voru veitt. Það voru þær Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri og Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, varaformaður umhverfis- og landbúnaðarnefndar, sem afhentu viðurkenningarnar. Sem fyrr er það umhverfis- og landbúnaðarnefnd sveitarfélagsins sem hafði forgöngu um verkefnið; auglýsti eftir tilnefningum,…Lesa meira

true

Heimsóknarreglur á Höfða uppfærðar

Á föstudag var tekin ákvörðun um að herða heimsóknarreglur á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Höfða á Akranesi. Heimsóknir verða aðeins leyfðar í tvær klukkustundir á dag, eða milli kl. 14:00 og 16:00 og aðeins einn má heimsækja heimilismann. Þær heimsóknir mega ekki fara fram inni á sameiginlegum svæðum heimilisins, eingöngu á herbergjum heimilismanna. Allir gestir eru…Lesa meira

true

Tveir nýir veiðieftirlitsmenn í Stykkishólmi

Fiskistofa réði nýverið sex nýja eftirlitsmenn til starfa í stað eldri starfsmanna sem látið hafa af störfum. Tveir þessara nýju veiðieftirlitsmanna voru ráðnir á starfsstöð stofnunarinnar í Stykkishólmi, en það eru þeir Jón Bek og Ríkarð Ríkarðsson. Fiskistofa er með starfsstöðvar á sex stöðum á landinu og dreifast nýju eftirlitsmennirnir á höfuðstöðvar Fiskistofu á Akureyri…Lesa meira

true

Skallagrími spáð öðru sæti en Snæfelli því næstneðsta

Spá formanna, þjálfara og fyrirliða þeirra liða sem keppa í Domino‘s deildum og 1. deildum kvenna var kunngjörð í hádeginu á föstudag. Skallagrími er spáð 2. sæti í Domino‘s deild kvenna en Snæfelli 7. og næstneðsta sæti deildarinnar. Valsliðinu er spáð deildarmeistaratitlinum og auk Skallagríms er því spáð að Keflavík og Haukar komist í úrslitakeppnina.…Lesa meira

true

Mótmæla fækkun héraðsdýralækna

Á fundi í umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar í gær var lögð fram tilkynning frá Matvælastofnun um fækkun umdæma héraðsdýralækna. Matvælastofnun tilkynnti það einhliða nú í byrjun vikunnar, og án samráðs við hlutaðeigandi sveitarfélög, að embættum héraðsýralækna verður fækkað um eitt, úr sex í fimm. Vesturumdæmi er skipt upp og raun lagt niður, þannig að Snæfellsnes…Lesa meira

true

21 smit í gær

Alls greindist 21 innanlandssmit Covid-19 faraldursins í gær (fimmtudag). Sjö þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu, en 14 ekki. Tveir eru á sjúkrahúsi með Covid-19, 739 eru í sóttkví og 108 í einangrun. Fjölgað hefur um 356 manns í sóttkví undanfarna tvo sólarhringa. Mjög mörg sýni voru tekin í gær, alls 4.004. Íslensk…Lesa meira

true

Krám og skemmtistöðum á höfuðborgarsvæðinu lokað tímabundið

Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að loka skemmtistöðum og krám á höfuðborgarsvæðinu, tímabundið í fjóra daga frá 18. – 21. september. Þetta er gert til að sporna við útbreiðslu COVID-19. Reglugerð heilbrigðisráðherra þessa efnis hefur þegar tekið gildi. Í minnisblaði sóttvarnalæknis segir að á þremur sólarhringum þar sem greindust alls 38 smit hafi…Lesa meira

true

Dramatík undir lokin þegar ÍA tapaði gegn Val

Sex mörk litu dagsins ljós þegar ÍA tók á móti toppliði Val í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu á fimmtudagskvöld. Því miður fyrir Skagamenn skoruðu gestirnir fjögur markanna og fóru því með 2-4 sigur af hólmi. Valsmenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust yfir strax á 6. mínútu. Eftir að hafa komist inn…Lesa meira

true

Eldstæðið opnar dyr fyrir matarfrumkvöðla

Undanfarna fjóra mánuði hefur frumkvöðullinn Eva Michelsen, ásamt góðu teymi, unnið hörðum höndum að því að standsetja húsnæði í Kópavogi og gera það klárt fyrir Eldstæðið, deilieldhús fyrir matarfrumkvöðla, smáframleiðendur og áhugasama matgæðinga. Eldstæðið er nú komið með starfsleyfi og fyrstu framleiðendur að hefja þar starfsemi. „Við erum afskaplega ánægð með viðtökurnar sem við höfum…Lesa meira

true

Akbrautin opnuð á Akranesi

Í byrjun mánaðarins var nýtt bíla- og sprautuverkstæði opnað við Dalbraut á Akranesi, við hliðina á Smáprenti. Verkstæðið Brautin var þar til húsa í fjölmörg ár þar til því var lokað vorið 2017. Einn af eigendum Brautarinnar, Jónas Theódór Sigurgeirsson, stendur að opnun nýja verkstæðisins, sem hefur fengið nafnið Akbrautin. Jónas hefur starfað við bifvéla-…Lesa meira