Fréttir

true

Dramatík undir lokin þegar ÍA tapaði gegn Val

Sex mörk litu dagsins ljós þegar ÍA tók á móti toppliði Val í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu á fimmtudagskvöld. Því miður fyrir Skagamenn skoruðu gestirnir fjögur markanna og fóru því með 2-4 sigur af hólmi. Valsmenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust yfir strax á 6. mínútu. Eftir að hafa komist inn…Lesa meira

true

Eldstæðið opnar dyr fyrir matarfrumkvöðla

Undanfarna fjóra mánuði hefur frumkvöðullinn Eva Michelsen, ásamt góðu teymi, unnið hörðum höndum að því að standsetja húsnæði í Kópavogi og gera það klárt fyrir Eldstæðið, deilieldhús fyrir matarfrumkvöðla, smáframleiðendur og áhugasama matgæðinga. Eldstæðið er nú komið með starfsleyfi og fyrstu framleiðendur að hefja þar starfsemi. „Við erum afskaplega ánægð með viðtökurnar sem við höfum…Lesa meira

true

Akbrautin opnuð á Akranesi

Í byrjun mánaðarins var nýtt bíla- og sprautuverkstæði opnað við Dalbraut á Akranesi, við hliðina á Smáprenti. Verkstæðið Brautin var þar til húsa í fjölmörg ár þar til því var lokað vorið 2017. Einn af eigendum Brautarinnar, Jónas Theódór Sigurgeirsson, stendur að opnun nýja verkstæðisins, sem hefur fengið nafnið Akbrautin. Jónas hefur starfað við bifvéla-…Lesa meira

true

Boðar hertar sóttvarnaraðgerðir á höfuðborgarsvæðinu

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir boðar hertar sóttvarnaraðgerðir á höfuðborgarsvæðinu. Hann mun skila minnisblaði þess efnis til heilbrigðisráðherra seinna í dag eða á morgun. Þar segir hann að spjótunum verði ekki síst beint að vínveitingastöðum. Fólk sem sæki þá eigi stóran þátt í þessari nýju bylgju Covid-19 faraldursins. Þetta kom fram í máli Þórólfs á upplýsingafundi almannavarna…Lesa meira

true

Undir áhrifum, án réttinda á ótryggðum bíl

Laust eftir kl. hálf fimm síðdegis á mánudag var tilkynnt um útafakstur á Vesturlandsvegi við Lyngholt. Lögregla fór á vettvang. Ökumaðurinn var látinn gangast undir fíkniefnapróf sem gaf jákvæða svörun við neyslu amfetamíns. Var ökumaðurinn því handtekinn, fluttur á lögreglustöð og gert að veita blóðsýni. Enn fremur reyndist hann aka eftir að hafa verið sviptur…Lesa meira

true

„Bylting í umferðaröryggi í göngunum“

Þessa dagana er unnið að uppsetningu kantljósa í Hvalfjarðargöngum. Um er að ræða LED ljós sem er komið fyrir meðfram vegarköntum ganganna, ásamt uppsetningu stjórnbúnaðar. Það er fyrirtækið Orkuvirki sem annast framkvæmdina en undirverktaki þeirra er Sagtækni, sem sér um að saga fyrir streng og bora fyrir ljósunum. Ljósin verða alls 506 talsins og sett…Lesa meira

true

Nýr eigandi tekur til hendinni í félagsheimilinu Valfelli

Dóróthea Guðrún Sigvaldadóttir festi nýverið kaup á eign sem hefur vakið athygli fólks í Borgarnesi og héraði. Hún fékk nýja húsið sitt afhent 15. maí síðastliðinn og hefur verið að hvert einasta kvöld eins og hún lýsir því sjálf. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn til hennar í nýja húsnæðið. „Hér hef ég verið hvert einasta…Lesa meira

true

Nítján smit í gær – Mesti fjöldi smita síðan í apríl

Alls greindust 19 ný Covid-19 smit hér á landi í gær, allt innanlandssmit. Ekki hafa fleiri smit greinst á einum degi síðan 9. apríl, þegar 27 smit greindust. Í fyrradag voru smitin 13 talsins og höfðu ekki verið fleiri í meira en mánuð, eins og áður hefur verið greint frá. Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði…Lesa meira

true

Tap í tíðindalitlum leik

Víkingur Ó. beið lægri hlut gegn Þór þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var á Akureyri og lauk viðureigninni með 1-0 sigri heimamanna. Ólafsvíkingar voru ákveðnari fram á við í upphafi leiks, héldu boltanum vel og áttu nokkrar prýðilegar sóknir. Litlu munaði að þeir kæmust yfir á 18. mínútu…Lesa meira

true

Fékk mikinn áhuga á vatnsborun

Alexander Ólafsson keypti sér bor og hefur nú borað eftir vatni um allar sveitir í Dölunum. Alexander býr á Álftanesi en á jörðina Skarfsstað í Hvammssveit í Dölum. Þar lét hann bora eftir vatni fyrir sig fyrir um tíu árum en komst að því nokkru síðar að kalda vatnið í krananum hjá honum væri tíu…Lesa meira