Fréttir

true

Bálhvasst á norðanverðu Snæfellsnesi

Eins og spáð hafði verið er nú bálhvasst á norðanverðu Snæfellsnesi, eða “stóri sunnan” eins og það er stundum nefnt þar um slóðir. Mestu vindhraði mældist í Kolgrafafirði nú á þriðja tímanum í dag. Staðbundinn vindur þar var 25 m/sek en fór í 43 m/sek í hviðum. Þar er því ekkert ferðaveður sem stendur. Samkvæmt…Lesa meira

true

Göngur og réttir í sveitum

Göngur og réttir standa nú sem hæst í sveitum víðsvegar um land. Liðin helgi var stór réttahelgi og sömu sögu má segja um þær næstu. Á meðfylgjandi mynd eru bændur úr Borgarfirði að koma með safnið eftir smölun af Arnarvatnsheiði síðdegis á laugardaginn. Á undan safninu riðu þeir Haukur Bjarnason á Skáney og Bjarni Árnason…Lesa meira

true

Hvetja íbúa til að skipta við heimamenn

Horfur atvinnulífs í Stykkishólmi voru til umræðu á fundi atvinnuvega- og nýsköpunarnefndar bæjarins fimmtudaginn 10. september síðastliðinn. Formaður gerði grein fyrir stöðu fyrirtækja í bænum næstu mánuði, á grundvelli athugunar bæjarskrifstofu Stykkishólmsbæjar. Í máli hans kom fram að þrengingar væru í ferðaþjónustu vegna Covid-19, en hugsanlega færi að rofa til með vorinu. Þá hefði starfsemi…Lesa meira

true

Ráðstefnunni „Covid og hvað svo,“ streymt á netinu

Ráðstefna Framtíðarseturs Íslands og Háskólans á Bifröst, Covid og hvað svo, fer fram föstudaginn 18. september kl. 09:00 til 10:30. Ráðstefnan verður í beinu streymi á netinu, en skráning á hana er á vef Háskólans á Bifröst, bifrost.is. Á ráðstefnunni verða til skoðunar framtíðarspár, stefnuáherslur og sviðsmyndir í kjölfar Covid-fársins. Veruleiki margra fyrirtækja og stofnana…Lesa meira

true

Þrettán smit í gær

Þrettán ný Covid-19 smit greindust innanlands í gær og hafa ekki verið fleiri á einum degi síðan fyrir verslunarmannahelgi. Aðeins einn þeirra sem greindist með veiruna í gær var í sóttkví en tveir greindumst með virkt smit á landamærunum. Flestir sem greindust eiga ekki í þekktum tengslum við aðra sem hafa smitast, að því er…Lesa meira

true

Ómar áttræður í dag

Einn þekktasti fréttamaður landsins, skemmtikraftur, umhverfisverndarsinni og flugmaður, Ómar Ragnarsson er áttatíu ára í dag. Ómar var nánast frá upphafi sjónvarpsútsendinga hér á landi daglegur gestur á skjánum. Litríkur, líflegur og uppátækjasamur sjónvarpsfréttamaður. Þá hefur hann skemmt landsmönnum á óteljandi samkomum, sungið og samið lög og var m.a. einn af burðarásum í Sumargleðinni sem skemmti…Lesa meira

true

Mikilvægur sigur Skagakvenna

ÍA lagði botnlið Völsungs með tveimur mörkum gegn einu, þegar liðin mættust í 1. deild kvenna í knattspyrnu. Leikið var á Húsavík á í gærkvöldi. Sigurinn tryggði Skagakonum mikilvæg stig og liðið fjarlægist botnliðin fyrir lokasprettinn í deildinni. Fyrri hálfleikur var markalaus en í upphafi síðari hálfleiks dró til tíðinda þegar Skagakonur fengu vítaspyrnu. Unnur…Lesa meira

true

Sjávarútvegsfyrirtækin skiluðu góðum hagnaði í fyrra

Rekstur íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja gekk vel á síðasta ári. Þetta kom fram í kynningu sem Deloitte hélt á Sjávarútvegsdeginum 2020, sem var í morgun. Sjávarútvegsdagurinn er samstarfsverkefni Samtaka atvinnulífsins, Deloitte og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Niðurstaða þessi byggist á ársuppgjörum fyrirtækja sem hafa yfir að ráða tæplega 90% af úthlutuðu aflamarki og er skalað upp í…Lesa meira

true

„Hugsaðu stórt en byrjaðu smátt, þannig gerast hlutirnir“

„Ég komst að því núna fyrir nokkrum dögum að ég á rætur í Grundarfirði. Langamma mín fæddist hérna, í Gröf í Grundarfirði, en faðir minn ólst upp í Kolbeinsstaðahreppi. Bróðir minn var að skrifa ævisögu hans og þar komst ég að þessu með langömmu, að ég ætti rætur hér,“ segir Ágúst í samtali við Skessuhorn.…Lesa meira

true

Hvassviðri spáð um vestanvert landið í dag

Í dag og fram til miðnættis er spáð vaxandi sunnanátt á landinu. Gul veðurviðvörun er í gildi fyrir Faxaflóa, Vestfirði, Breiðafjörð og miðhálendið í dag og fram á kvöldið. Búast má við hvassviðri við fjöll t.d. á norðanverðu Snæfellsnesi. Það verða 13 til 20 metrar á sekúndu vestantil seinnipartinn, annars 8 til 15 m/sek. Rigning…Lesa meira