Fréttir

true

Katarína framleiðir og selur fallegt og sérstakt silfurskart

Í byrjun árs 2019 ákvað Katarína Stefánsdóttir frá Akranesi að breyta til og flytja til fjölskyldu sinnar sem var þá nýflutt til Svíþjóðar þar sem að bróðir hennar Oliver fór í atvinnumennsku í fótbolta. Hana hafði lengi langað að flyta til baka þangað, en fjölskyldan átti heima í Svíþjóð þegar Katarína var lítil. Hún fór…Lesa meira

true

Ökklabrot á berjamó

Maður slasaðist á göngu á Bröttubrekku seinni partinn á sunnudag, 29. ágúst. Að sögn lögreglu var viðkomandi að gá til berja, þegar hann rann í blautu grasi með þeim afleiðingum að hann ökklabrotnaði. Kallað var eftir aðstoð sjúkrabíls sem kom hinum slasaða undir læknishendur.Lesa meira

true

Styrkur Hvalfjarðarsveitar til Björgunarfélags Akraness hækkar

Í gærkvöldi var skrifað undir endurnýjun á styrktarsamning milli Hvalfjarðarsveitar og Björgunarfélags Akraness. Það voru Sigrún Guðný Pétursdóttir, formaður Björgunarfélags Akraness, og Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar, sem undirrituðu samninginn. Hvalfjarðarsveit hefur árlega styrkt starf sveitarinnar, en nú við endurnýjun samningsins til næstu fimm ára var styrkupphæðin hækkuð í 1,4 milljónir. Björgunarfélagið skuldbindur sig jafnframt…Lesa meira

true

Þakjárnið fest fyrir norðaustan hvell

Það eru ekki einungis opinberar stofnanir og stærri fyrirtæki sem staðið hafa í framkvæmdum í sumar. Einstaklingar hafa einnig verið duglegir að gera við húsin sín, mála og ditta að þeim fyrr veturinn. Á meðfylgjandi mynd eru þeir félagar Ómar Marisson og Jóhannes Kristjánsson í Ólafsvík. Þeir voru í gær að leggja nýtt þak á…Lesa meira

true

Tólffalt meiri eftirspurn en framboð af mjólkurkvóta

Alls bárust 209 gild tilboð um kaup og sölu á tilboðsmarkaði fyrir greiðslumark mjólkur í gær, 1. september. Þetta er annar markaðurinn með greiðslumark með því fyrirkomulagi sem samið var um við endurskoðun á samstarfssamningi um nautgriparækt milli ríkis og bænda á síðasta ári. Jafnvægisverð á markaði er nú ákveðið 294 kr. fyrir hvern lítra…Lesa meira

true

Eigendaskipti á KM þjónustunni í Búðardal

Í gær urðu eigendaskipti að KM þjónustunni ehf. í Búðardal. Hjónin Karl Ingi Karlsson og Steinunn Matthíasdóttir hafa rekið fyrirtækið undanfarna tvo áratugi. Nýr eigandi er Vilhjálmur Hörður Guðlaugsson, en hann hefur starfað hjá fyrirtækinu síðastliðin átta ár. KM þjónustan verður eftir eigendaskiptin áfram rekin í sömu mynd, en kjarnastarfsemin er verkstæðisrekstur, verslun og dráttarbílaþjónusta,…Lesa meira

true

Spáir slæmu veðri fyrir norðan og austan

Veðurstofan býst við slæmu veðri, einkum um norðan- og austanvert landið næstu daga. Appelsínugul viðvörun er fyrir norðanvert landið, samhliða hvassviðri og jafnvel stormi. Samhliða veður úrkoma. Hiti verður nálægt frostmarki og annað kvöld gæti orðið slydda ofan 300 metra og snjókoma ofan 500 metra. Þá er líklegt að færð spillist á fjallvegum. Hér sunnan…Lesa meira

true

Matvælasjóður formlega tekinn til starfa

Í dag var formlega opnað fyrir umsóknir í nýjan Matvælasjóð. Frumvarp Kristjáns Þórs Júlíusson atvinnuvegaráðherra um stofnun sjóðsins var samþykkt á Alþingi í apríl síðastliðnum og 500 milljónum króna varið til stofnunar sjóðsins. Verður þeim fjármunum úthlutað á þessu ári. Hlutverk sjóðsins er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar-…Lesa meira

true

Endurgerð Faxabrautar hafin – stærsta einstaka framkvæmd Borgarverks á árinu

Framkvæmdir hófust við endurgerð Faxabrautar á Akranesi í gær og munu standa yfir næsta árið. Í verkinu felst hækkun götunnar, lagnavinna og frágangur, ásamt stækkun grjótvarnargarðsins. Verkefnið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Akraneskaupstaðar og veitufyrirtækja. Það er Borgarverk ehf. sem annast framkvæmdina. „Þetta er stórt verk, ætli þetta sé ekki stærsta verkið okkar á þessu ári,“ segir…Lesa meira

true

ASÍ hafnar með öllu að launahækkunum verði frestað

„Miðstjórn Alþýðusambands Íslands hafnar með öllu hugmyndum um frestun launahækkana og skerðingu launa sem settar hafa verið fram af fulltrúum atvinnurekenda og stjórnvalda undanfarið. Miðstjórn ASÍ áréttar einnig mikilvægi þess að stjórnvöld etji ekki aðilum vinnumarkaðar saman nú þegar endurskoðun kjarasamninga stendur fyrir dyrum.“ Þannig hljómar upphaf tilkynningar frá miðstjórn ASÍ.  Þá segir að kjaraskerðing…Lesa meira