Fréttir

true

Covidstyrkir til fjölmiðla samþykktir

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur samþykkt tillögu fjölmiðlanefndar um úthlutun sérstaks einskiptis rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla, til að mæta efnahagslegum áhrifum Covid-19 faraldursins. Styrkveitingin, sem samþykkt var á Alþingi í vor, hljóðar upp á 400 milljónir króna og skiptist á milli 23 fjölmiðla, en þremur umsóknum var hafnað. Sjálft fjölmiðlafrumvarp ráðherra, sem fæli í…Lesa meira

true

Haldið til veiða á nýju kvótaári

Nú þegar nýtt kvótaár er gengið í garð eru flestir bátar byrjaðir að róa aftur eftir sumarfrí. Einhverjir byrjuðu síðustu dagana í ágúst og er líf farið að myndast aftur í höfnum á Snæfellsnesi eftir að strandveiðum sumarsins lauk, en síðasti dagur þeirra var 19. ágúst. Á meðfylgjandi mynd eru skipverjar á Gunnari Bjarnasyni SH…Lesa meira

true

Skoruðu úr sitthvorri vítaspyrnunni

Víkingur Ó. og Fram skildu jöfn, 1-1, þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu. Leikið var í Reykjavík í gærkvöldi. Framarar naga sig ef til vill í handarbökin að hafa ekki náð þremur stigum út úr leiknum. Þeir voru meira með boltann en náðu ekki að skapa sér mikið af færum. Leikur Ólafsvíkinga…Lesa meira

true

Björgin dró Rifsara til hafnar

Dragnótarbáturinn Rifsari SH fékk tóg í skrúfuna í gær og varð því vélarvana. Skipið var þá statt um tvær og hálfa sjómílu norður af Rifi. Björgunarbátur Lífsbjargar í Snæfellsbæ, Björgin, fór strax til aðstoðar. Veður var óhagstætt þegar óhappið varð, stífur norðaustan vindur og fallið ekki hagstætt. Heldur bætti svo í vind þegar leið á…Lesa meira

true

Katarína framleiðir og selur fallegt og sérstakt silfurskart

Í byrjun árs 2019 ákvað Katarína Stefánsdóttir frá Akranesi að breyta til og flytja til fjölskyldu sinnar sem var þá nýflutt til Svíþjóðar þar sem að bróðir hennar Oliver fór í atvinnumennsku í fótbolta. Hana hafði lengi langað að flyta til baka þangað, en fjölskyldan átti heima í Svíþjóð þegar Katarína var lítil. Hún fór…Lesa meira

true

Ökklabrot á berjamó

Maður slasaðist á göngu á Bröttubrekku seinni partinn á sunnudag, 29. ágúst. Að sögn lögreglu var viðkomandi að gá til berja, þegar hann rann í blautu grasi með þeim afleiðingum að hann ökklabrotnaði. Kallað var eftir aðstoð sjúkrabíls sem kom hinum slasaða undir læknishendur.Lesa meira

true

Styrkur Hvalfjarðarsveitar til Björgunarfélags Akraness hækkar

Í gærkvöldi var skrifað undir endurnýjun á styrktarsamning milli Hvalfjarðarsveitar og Björgunarfélags Akraness. Það voru Sigrún Guðný Pétursdóttir, formaður Björgunarfélags Akraness, og Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar, sem undirrituðu samninginn. Hvalfjarðarsveit hefur árlega styrkt starf sveitarinnar, en nú við endurnýjun samningsins til næstu fimm ára var styrkupphæðin hækkuð í 1,4 milljónir. Björgunarfélagið skuldbindur sig jafnframt…Lesa meira

true

Þakjárnið fest fyrir norðaustan hvell

Það eru ekki einungis opinberar stofnanir og stærri fyrirtæki sem staðið hafa í framkvæmdum í sumar. Einstaklingar hafa einnig verið duglegir að gera við húsin sín, mála og ditta að þeim fyrr veturinn. Á meðfylgjandi mynd eru þeir félagar Ómar Marisson og Jóhannes Kristjánsson í Ólafsvík. Þeir voru í gær að leggja nýtt þak á…Lesa meira

true

Tólffalt meiri eftirspurn en framboð af mjólkurkvóta

Alls bárust 209 gild tilboð um kaup og sölu á tilboðsmarkaði fyrir greiðslumark mjólkur í gær, 1. september. Þetta er annar markaðurinn með greiðslumark með því fyrirkomulagi sem samið var um við endurskoðun á samstarfssamningi um nautgriparækt milli ríkis og bænda á síðasta ári. Jafnvægisverð á markaði er nú ákveðið 294 kr. fyrir hvern lítra…Lesa meira

true

Eigendaskipti á KM þjónustunni í Búðardal

Í gær urðu eigendaskipti að KM þjónustunni ehf. í Búðardal. Hjónin Karl Ingi Karlsson og Steinunn Matthíasdóttir hafa rekið fyrirtækið undanfarna tvo áratugi. Nýr eigandi er Vilhjálmur Hörður Guðlaugsson, en hann hefur starfað hjá fyrirtækinu síðastliðin átta ár. KM þjónustan verður eftir eigendaskiptin áfram rekin í sömu mynd, en kjarnastarfsemin er verkstæðisrekstur, verslun og dráttarbílaþjónusta,…Lesa meira