Fréttir

true

Töluvert mikið gekk af laxi í Gljúfurá

„Það var frekar rólegt í Gljúfuránni en við veiddum bara á fluguna, mest veiðist þarna á maðkinn,“ sagði Tómas Lorange Sigurðsson en hann var að koma úr Gljúfurá í Borgarfirði fyrir skömmu. Veiðin þar hefur verið frekar róleg í sumar. En það gæti breyst á næstu dögum. Nú hefur rignt hressilega og laxar voru að…Lesa meira

true

Borgarbyggð vann púttkeppnina á nýju mótsmeti

Þriðja og síðasta viðureign eldri borgara á Akranesi og Borgarbyggð í sumarpúttinu fór fram að Hamri í Borgarnesi þriðjudaginn 11. ágúst. Fyrr í sumar var keppnin haldin á Akranesi og í Nesi í Reykholtsdal. Veður var milt og kyrrt en örlítið úðarigning síðastliðinn þriðjudag. Olli það erfiðleikum fyrir ritara og voru sum skorblöðin nær óskiljanleg…Lesa meira

true

Geta sótt um sérstaka styrki

Dreifbýl sveitarfélög geta sótt um styrki til að mæta áskorunum sem hafa fylgt Covid-19 faraldrinum í félagsþjónustu og barnavernd vorið 2020. Í fjáraukalögum, sem samþykkt voru á Alþingi í maí, var ákveðið að veita 30 milljónum króna til að takast á við þessar áskoranir í dreifðustu byggðum landsins. Við úthlutun styrkjanna verður eingöngu horft til…Lesa meira

true

Flutningabíll utan vegar á Hafnarmelum

Stór flutningabíll fór útaf veginum við Hafnarfjall fyrr í kvöld. Hélst hann á hjólunum en djúp för eru utan vegar eftir bílinn. Vegfarendur sem leið áttu um þjóðveginn sendu Skessuhorni meðfylgjandi myndir, en nánari upplýsingar liggja ekki fyrir. Úrhellisrigning hefur verið á þessum slóðum í dag og vegurinn mjög blautur sem og annarsstaðar í landshlutanum.Lesa meira

true

Leikið fyrir tómum stúkum

Leikið verður án áhorfenda á Íslandsmótið í knattspyrnu, í það minnsta fyrst um sinn eftir að íþróttaleikir með snertingum hafa verið heimilaðir að nýju. Þetta kom fram í máli Víðis Reynissonar yfirlögregluþjóns á upplýsingafundi almannavarna á fimmtudag. Áhorfendum verður ekki heimilað að sækja íþróttaviðburði fyrst um sinn, eins og fram kemur í minnisblaði sóttvarnalæknis. „Það…Lesa meira

true

Í Þingspilinu hafa þátttakendur þingmenn í vasanum

„Spilaðu formann flokks á þingi sem keppist við að koma sem flestum þingmönnum í eigin vasa – styddu málefni, settu lögbann á hneyksli og stingdu svo hina formennina í bakið!  Spil fyrir fólk sem þolir ekki spillingu, nema það fái að spila með.“ Þannig hljómar athyglisverð kynning á nýju borðspili sem nú er leitað stuðnings…Lesa meira

true

Mikill munur á andlitsgrímum hvað varðar verð og gæði

Verðlagseftirlit ASÍ hefur kannað verð á þriggja laga einnota andlitsgrímum m.a. í hinum ýmsu verslunum, netverslunum, matvöruverslunum og apótekum. Úrval og framboð af andlitsgrímum er mjög misjafnt milli verslana og mikill verðmunur á slíkum andlitsgrímum. Lægsta stykkjaverðið í könnuninni var að finna í Costco, 42 kr. stk eða 2.089 kr., fyrir pakka með 50 grímum.…Lesa meira

true

Rigningin hleypti lífi í veiðina í Hörðudalsá

„Já, við lentum í flottri veiði í Hörðudalsá enda fór heldur betur að rigna og áin fimmfaldaðist eftir stanslausar rigningar,“ sagði Þórir Valdimar Indriðason úr Borgarnesi, en hann var að koma úr Hörðudalsá í Dölum ásamt Hafsteini Þórissyni frænda sínum eftir einhverjar mestu rigningar sem hafa verið þar í sumar. Áin varð fljótlega að stórfljóti…Lesa meira

true

Sex ný smit af Covid-19 voru greind í gær

Sex virk innanlands greindust í gær, öll á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans. Tvö ný smit voru á Suðurnesjum og þrjú á Suðurlandi, þar af að minnsta kosti eitt í Vestmannaeyjum. Einn er enn á spítala með veiruna og liggur viðkomandi á gjörgæsludeild. Á Vesturlandi eru nú fimm í einangrun með veiruna og 35 einstaklingar í…Lesa meira

true

Fimmtán sóttu um starf forstöðumanns íþróttamannvirkja

Akraneskaupstaður auglýst starf forstöðumanns íþróttamannvirkja laust til umsóknar um miðjan júlí síðastliðinn. Umsóknarfrestur rann út sunnudaginn 9. ágúst og sóttu 15 um starfið. Umsækjendur eru, í stafrófsröð: Brynja Kolbrún Pétursdóttir, Dagný Ósk Halldórsdóttir, Davíð Svansson, Gunnar Ásgeir Karlsson, Hallgrímur Viðar Arnarson, Jón Þór Hallgrímsson, Kristín Þórðardóttir, María Esther Guðjónsdóttir, Páll Guðmundur Ásgeirsson, Pétur T. Gunnarsson,…Lesa meira