
Óhapp varð í umferðinni á Akranesi síðdegis í gær. Fullorðinn ökumaður á ferð austur Kalmansbraut fipaðist við aksturinn. Í stað þess að stíga á hemla bílsins steig hann á eldsneytisgjöfina og ók upp á umferðareyju. Ökumaður slasaðist ekki en bíllinn var óökuhæfur og var fluttur af vettvangi með kranabíl.Lesa meira








