
Síðastliðinn mánudag var gamla laugarhúsið við Hreppslaug í Skorradal jafnað við jörðu. Lauginni var lokað fyrir gestakomum í endaðan júlí. Byrjað var á framkvæmdum í síðustu viku þegar vaskur hópur ungmennafélaga reif á tveimur kvöldstundum þakplötur, timburklæðningu af útveggjum og innréttingar. Með flokkun byggingarefnanna sparaði félagið kostnað við förgun. Útveggir hússins voru svo rifnir á…Lesa meira








