Fréttir

true

Íbúatalan hefur lítið breyst á Vesturlandi frá 1. desember

Á átta mánaða tímabili frá 1. desember 2019 til 4. ágúst fjölgaði íbúum á Vesturlandi um 22, sem jafngildir 0,1%. Íbúar eru nú 16.688. Á tímabilinu fækkaði íbúum í þremur sveitarfélögum í landshlutanum. Mest fækkaði í Stykkishólmi um 17 íbúa sem jafngildir 1,4% og í Grundarfirði fækkaði um 13 íbúa en það jafngildir 1,5% fækkun.…Lesa meira

true

Kerlingarfjöll friðlýst

Í dag var undirrituð friðlýsing Kerlingarfjalla og nærliggjandi svæða, alls um 344 ferkílómetrar. Friðlýsingunni var fagnað við hálendismiðstöðina í Ásgarði í Kerlingarfjöllum. Kerlingarfjöll eru í hópi helstu náttúruperla landsins, vinsælt útivistarsvæði með mikið verndargildi. Áform um friðlýsingu hófust árið 2016 en sveitarfélagið Hrunamannahreppur hafði frumkvæði að samstarfi við undirbúning hennar. Margir hafa komið að verkefninu…Lesa meira

true

11 í einangrun með Covid og 62 í sóttkví

Ný virk innanlandssmit á landinu af Covid-19 voru tvö á síðasta sólarhring, bæði í Vestmannaeyjum. Auk þess greindist eitt við landamærin og jákvæð niðurstaða fannst úr einni skimun þar sem beðið hafði verið eftir mótefnamælinu. Nú eru 114 með veiruna og alls 938 í sóttkví á landinu öllu. Hér á Vesturlandi eru nú 11 í…Lesa meira

true

Páll Sindri í Kára

Miðjumaðurinn Páll Sindri Einarsson hefur gengið til liðs við Kára að nýju og mun leika með liðinu í 2. deild karla í knattspyrnu þegar keppni hefst að nýju. Pál Sindra þarf ekki að kynna áhangaendum Káraliðsins. Hann lék fyrst með liðinu árið 2014 og aftur 2016, 2017 og 2018. Árið 2018 var hann einn besti…Lesa meira

true

Vætusamt á Vesturlandi í dag

Spáð er suglægri átt og víða vætu um sunnan- og vestanvert landið í dag, en bjartviðri með köflum á norðausturlandi. Hvessir heldur og bætir í rigningu á vestanverðu landinu seinni partinn í dag. Síðdegis í dag og fram á kvöld er spáð sunnanátt, 10-15 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi, en búist við hviðum yfir 20 m/s.…Lesa meira

true

Bjarki Pétursson er Íslandsmeistari í golfi

Borgnesingurinn Bjarki Pétursson, sem keppir fyrir GKG, varð í gær Íslandsmeistari í golfi. Hann lék á samtals 13 höggum undir pari, sem er nýtt mótsmet. Bjarki lék lokadag mótsins á 68 höggum og sigraði af miklu öryggi, því næstu menn luku keppni á fimm höggum undir pari. Hann hafði tveggja högga forystu fyrir lokadaginn og…Lesa meira

true

Bjarnarkló er ein af eftirlýstum plöntum í náttúrunni

Í vegkantinum við Vesturlandsveg, þjóðveginn á móts við Ölver við Hafnarfjall, er nú vaxin upp plantan Bjarnarkló (Heracleum mantegazzianum). Bjarnarkló er tröllahvönn; stórvaxin sveipjurt sem upprunnin er í Kákasus og Mið-Asíu en var flutt þaðan til Evrópu sem skrautjurt í görðum. Hún líkist hvönn, en er mun stórvaxnari og fjölgar sér með rótarskotum. Þorleifur Geirsson…Lesa meira

true

Bjarki og Ragnhildur í forystu fyrir lokadaginn

Borgnesingurinn Bjarki Pétursson, sem spilar fyrir GKG, er með tveggja högga forystu í karlaflokki fyrir lokahringinn á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fer á Hlíðavelli í Mosfellsbæ. Lokahringurinn verður spilaður í dag. Bjarki, sem setti vallarmet á Hlíðavelli á öðrum keppnisdegi, fylgdi eftir góðri spilamennsku með því að leika á 69 höggum í gær eða…Lesa meira

true

Fótboltanum frestað til fimmtudags

Beiðni Knattspyrnusambands Íslands um undanþágu frá nándartakmörkunum og sótthreinsun búnaðar í æfingum og keppni í knattspyrnu hefur verið hafnað. Því hefur mótanefnd KSÍ ákveðið að fresta öllum leikjum í meistaraflokkum, sem og í 2. og 3. flokki karla og kvenna, til og með fimmtudeginum 13. ágúst. „Knattspyrnuleikir eru í eðli sínu þannig að ekki er…Lesa meira

true

Gott útlit með berjasprettu

Meðfylgjandi mynd var tekin af bláberjalyngi í uppsveitum Borgarfjarðar í gær, 6. ágúst. Þar má sjá að bláberjalyng hefur blómgast vel og ber náð að þroskast með ágætum. Með nokkrum sólríkum dögum til viðbótar, á einni eða tveimur vikum, má ætla að þessi ber verði öll orðin blá og safarík um miðjan ágúst. Skessuhorn hefur…Lesa meira