
Vaskur 16 manna hópur borgfirsks björgunarsveitarfólks var um vikutíma á Sprengisandi um mánaðamótin og sinnti hálendisvakt björgunarsveitanna. Þetta voru félagar úr björgunarsveitunum Brák, Ok og Heiðari. Bjó hópurinn í skála Ferðafélags Íslands í Nýjadal. Olgeir Helgi Ragnarsson úr Björgunarsveitinni Brák skrifaði færslu um ferðina: „Það sýndi sig að við áttum fullt erindi. Við aðstoðuðum ferðafólk…Lesa meira








