
Menningar- og markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar hefur í samstarfi við Hrafn Art unnið að gerð kynningarmyndbanda fyrir sveitarfélagið. Fyrra myndbandið var kynningarmyndband fyrir þá sem eru á ferðalagi um Hvalfjarðarsveit og var birt um síðustu mánaðamót. Nú er búið að birta seinna myndbandið sem er kynningarmyndband um hvernig sé að búa í Hvalfjarðarsveit. Sjá myndbandið hér.Lesa meira








