Fréttir

true

Grundarfjarðarkirkja fimmtíu ára

Sunnudaginn 31. júlí verða 50 ár liðin frá því Grundarfjarðarkirkja var vígð. Í tilefni þess verður haldið upp á daginn með sýningu í Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Blaðamaður kíkti í kirkjuna og spjallaði við Ragnheiði Þórarinsdóttur formann afmælisnefndar, Guðrúnu Margréti Hjaltadóttur formann Setbergsprestakalls og Aðalstein Þorvaldsson sóknarprest.   Byggð af samfélaginu Grundarfjarðarkirkja var vígð 31. júlí 1966…Lesa meira

true

Sjö milljónir til endurbyggingar Grímshúss

  Samningur um styrk frá Minjastofnun Íslands var lagður fram á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar 7. júlí síðastliðinn. Styrkurinn er sjö milljónir króna og skal hann renna óskiptur til endurbyggingar og framkvæmda við Grímshúsið í Brákarey. Samningurinn var undirritaður 1. júní síðastliðinn og er byrjað að framkvæma út á styrkupphæðina. Húsið var byggt árið 1942 af…Lesa meira

true

Minnsta atvinnuleysi síðan 2008

  Atvinnuleysi var tvö prósentustig í júní samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Hefur atvinnuleysi ekki verið minna síðan í október 2008, þá 1,9 prósent. Að meðaltali voru 3.789 án atvinnu í síðasta mánuði og fækkaði þeim um 229 eða 0,2 prósent frá því í maí. Körlum án atvinnu fækkaði um 156 frá því í maí og voru…Lesa meira

true

Lengsta sigurganga Skagamanna í efstu deild í 13 ár

Í dag mættu Skagamenn liði ÍBV á Akranesvelli í tólftu umferð Pepsi deildar karla. Skagamenn sem byrjuðu mótið illa og voru aðeins með fjögur stig eftir sjö umferðir hafa snúið við blaðinu í undanförnum leikjum. Þeir sigruðu lið ÍBV í dag 2-0 og hafa þeir því unnið fimm leiki í röð. Þetta er lengsta sigurganga…Lesa meira

true

Skynsamlega lagt í stæði

Eins og margir vita eru bílastæði oft fremur þröng, í það minnsta fyrir fullvaxna bíla, og því erfitt að leggja í þau sum án þess að ganga á hlut næsta bíls við hliðina. Þessa skemmtilegu mynd tók Sverrir Karlsson í Grundarfirði. Ford bíll frá Snæfellsnes excursion fyrirtækinu er eðil málsins samkvæmt of stór fyrir venjulegt…Lesa meira

true

Myndasyrpa frá Íslandsmóti yngri flokka í hestaíþróttum

Íslandsmót yngri flokka í hestaíþróttum fór fram í Borgarnesi um síðustu helgi. Veðrið á mótinu var prýðisgott og mótið heppnaðist almennt vel. Vestlendingar stóðu sig vel á mótinu og ber þar hæst árangur Mána Hilmarssonar sem varð Íslandsmeistari í ungmennaflokki í fimmgangi á hestinum Presti frá Borgarnesi með heildareinkunnina 6,83. Í sama flokki lenti Konráð…Lesa meira

true

Betri árangur af slætti á lúpínu en eitrun

Í liðinni viku kom út tímaritið Náttúrufræðingurinn sem Hið íslenska náttúrufræðifélag gefur út. Í ritinu birtist niðurstöður tilraunar um áhrif sláttar og eitrunar á lúpínubreiður og gróðurfar sem Stykkishólmsbær og Náttúrustofa Vesturlands hafa unnið að síðustu fimm árin. Höfundar greinarinnar eru Kristín Svavarsdóttir, Menja von Schmalensee, Ásta L. Aradóttir, Anne Bau og Róbert A. Stefánsson.…Lesa meira

true

Stemning á Reykhóladögum

Byggðahátíðin Reykhóladagar stendur nú sem hæst. Þegar þessi orð eru rituð stendur yfir keppni í dráttarvélaleikni, en keppnin hefur verið fastur liður í dagskrá Reykhóladaga frá upphafi. Fjölmenni er saman komið í þorpinu og fylgist með ökuþórunum leika listir sínar. Í næsta tölublaði Skessuhorns sem kemur út á miðvikudag verður meðal annars að finna myndasyrpu…Lesa meira

true

Frambjóðendur í prófkjöri Pírata í Norðvesturkjördæmi

Frestur til að skila framboði til prófkjörs Pírata í Norðvesturkjördæmi rann út í gær, föstudaginn 22. júlí. Mánudaginn 8. ágúst hefst rafræn kosning sem lýkur mánudaginn 15. ágúst. Kosningarétt hafa allir félagsmenn Pírata með lögheimili í Norðvesturkjördæmi og hafa verið skráðir í skráningarkerfi Pírata 30 dögum áður en prófkjörskosning hefst. Þeir sem hafa gefið kost…Lesa meira

true

Markaður og skemmtiferðaskip í Grundarfirði

Fimmtudaginn 14. júlí voru tvö skemmtiferðaskip í Grundarfjarðarhöfn. Þetta voru skipin Le Austral og Star Legend, sem láu við ankeri á ytri höfninni. Eins og venja er þá fara farþegar ýmist með rútum í skoðunarferðir eða rölta um bæinn. Það voru því nokkrar galvaskar handverkskonur sem ákváðu að setja upp markað fyrir ferðamennina í hjarta…Lesa meira