Fréttir

true

Jafntefli í fjörugum leik

Karlalið ÍA í knattspyrnu skildi að jöfnu við lið HK úr Kópavogi þegar liðin mættust í fjörugum leik í fimmtu umferð Pepsi Max deildar karla á Akranesvelli í gærkvöldi. Skagamenn komu inn í viðureignina fullir sjálfstrausts eftir sannfærandi útisigur gegn Valsmönnum í síðustu umferð á meðan HK-ingar gerðu jafntefli í miklum markaleik gegn Gróttu. Eftir…Lesa meira

true

Ýmiskonar ferðamáti

Nýliðin helgi var líklega einhver stærsta ferðahelgi í langan tíma á Snæfellsnesi enda veðurspáin hagstæð og því mikið af ferðalöngum sem lögðu land undir fót og héldu á Vesturland. Víða voru tjaldsvæði þétt setin og var tjaldsvæðið í Grundarfirði engin undantekning. Þó voru ekki allir sem komu akandi með hjólhýsið eða fellihýsið í eftirdragi því…Lesa meira

true

Heilbrigðisstofnun Vesturlands vill ekki taka við rekstri Silfurtúns

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar 13. febrúar í vetur var samþykkt að leita eftir því að Heilbrigðisstofnun Vesturlands tæki við rekstri Dvalar- og hjúkrunarhimilisins Silfurtúns í Búðardal. Þá sendi Kristján Sturluson sveitarstjóri bréf til Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur forstjóra HVE þar sem hann óskaði eftir formlegri afstöðu HVE um að stofnunin tæki við rekstri Silfurtúns. Sagði hann…Lesa meira

true

Skortir búnaðinn til að skanna rafræn ökuskírteini

Ökumenn eru nú farnir að framvísa rafrænum ökuskírteinum. Slík ökuskírteini þarf að skanna en lögregluembættið á Vesturlandi hefur ekki enn fengið slíkan skanna í hendur. Þarf lögreglan því að hafa samband við fjarskiptamiðstöðina til að kanna með ökumenn, hvort þeir hafi ekki örugglega réttindi til aksturs. Þegar hefur komið upp dæmi um ökumann sem hafði…Lesa meira

true

Gunnar Viðar varð fyrstur til að hlaupa 100 mílur á Íslandi

Gunnar Viðar Gunnarsson í Borgarnesi varð um helgina fyrstur allra til að ljúka viðurkenndu 100 mílna keppnishlaupi á Íslandi. Hlaupið var hluti af viðburðinum America to Europe Ultra, sem nú var haldinn í fyrsta sinn. Boðið var upp á nokkrar vegalengdir en Gunnar var sá eini sem lagði í 100 mílurnar. Hann hljóp af stað…Lesa meira

true

Mokveiði í Hraunsfirði

Veiðin hefur verið frábær í Hraunsfirði á Snæfellsnesi dag eftir dag og veiðimenn verið að fá mjög fallegar bleikjur. Einn veiðimaðurinn sagði: „Hraunsfjöðurinn hreinlega kraumar af fiski.“ Það eru víst orð að sönnu þessa dagana. ,,Veiðin gekk frábærlega, ég tók yfir 40 bleikjur í dag, mjög góðan matfisk,“ sagði Ingi Rafn er við heyrðum í…Lesa meira

true

Vestfjarðavíkingurinn fór fram um helgina

Um helgina fór aflraunakeppinn Vestfjarðavíkingurinn 2020 fram í Dölum og á Snæfellsnesi. Að þessu sinni fór keppnin ekki fram á Vestfjörðum, þrátt fyrir nafnið, en brugðið var á það ráð vegna sóttvarna vegna Covid-19. Magnús Ver Magnússon fjórfaldur sterkasti maður heims lýsti keppninni, en keppendur voru tíu talsins. Keppinn hófst i Búðardal á föstudaginn þar…Lesa meira

true

Friðsamir Írskir dagar

Að sögn Lögreglunnar á Vesturlanda fóru Írskir dagar á Akrnesi að mestu friðsamlega fram. Nokkuð var um útköll vegna hávaða og lögregla þurfti aðeins að hafa afskipti af fólki vegna ölvunar. Þá ákvað hópur fólks að tjalda utan tjaldsvæðis og var þeim bent á að færa sig yfir á tjaldsvæðið. Einn maður undir áhrifum áfengis…Lesa meira

true

Veðurblíða á Meistaramóti GB

Meistaramót Golfklúbbs Borgarness fór fram á Hamarsvelli í Borgarnesi dagana 30. júní til 3. júlí. Mótið hófst á þriðjudegi og spiluðu kylfingar 18 holur, fjóra daga í röð. Mótið er höggleikur að undanskildum Opnum flokki, sem spilaði með punkta-fyrirkomulagi, en þessi flokkur er settur á laggirnar til að hvetja nýja kylfinga í sportinu til keppni.…Lesa meira

true

Mótmæla því að Sorpurðun ásælist að urða í Fíflholtum sorp úr öðrum landshlutum

Nágrannar við sorpurðunina að Fíflholtum á Mýrum hafa sent stjórn fyrirtækisins athugasemdir vegna frummatsskýrslu sem gerð hefur verið vegna áhrifa fyrirhugaðrar aukningar á magni sorps sem urða má í Fíflholtum. „Við nágrannar við urðunarstaðinn erum mjög óánægðir með þá ásókn stjórnar Sorpurðunar Vesturlands að vilja auka það magn sorps sem heimilt er að urða,“ segir…Lesa meira