
Í síðustu viku var undirritaður endurnýjaður samningur milli Menntaskóla Borgarfjarðar (MB) og Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ). Eldri samningurinn byggði á samstarfi um sameiginlega náttúrufræðibraut með búfræðisviði til stúdentsprófs þar sem nemendur taka fyrstu tvö árin í Menntaskóla Borgarfjarðar og síðari tvö árin á Hvanneyri til búfræðiprófs. Nemendur útskrifast þá eftir fjögurra ára nám með sameiginlega gráðu…Lesa meira








