Fréttir

true

Gengur vel í Ljómalind

Sveitamarkaðurinn Ljómalind í Borgarnesi var fyrst opnaður fyrir rúmum þremur árum. Síðan þá hefur verslunin stækkað jafnt og þétt og m.a. flutt einu sinni. Nú er svo komið að markaðurinn er opinn alla daga vikunnar frá 10-18. Skessuhorn var á ferðinni í Borgarnesi fyrir helgi og lék forvitni á að vita um gang mála það…Lesa meira

true

Maður slasaðist á fæti

Björgunarsveitir á Snæfellsnesi voru kallaðar út um kl. 20:00 að kvöldi síðasta fimmtudags vegna manns sem var slasaður á fæti. Var hann staddur í Sauraskógi við Stykkishólm. Verkefnið gekk fljótt og vel fyrir sig, enda um stuttan veg að fara þar til hægt var að koma manninum til aðstoðar.Lesa meira

true

Allt á fullt í Ólafsdal á næsta ári

Skessuhorn greindi í ágúst í fyrra frá fyrirhugaðri uppbyggingu í Ólafsal. Undirritað var samkomulag ríkissjóðs við Minjavernd um viðtöku eigna og lands í Ólafsdal í Gilsfirði. Minjavernd var falið að endurreisa byggingar og hafa umsjón með menningarlandslagi á svæðinu. Minjavernd tók enn fremur að sér að endurbyggja gamla skólahúsið og önnur hús sem enn standa…Lesa meira

true

Kortavelta aldrei meiri en í júní

Í júní síðastliðnum nam erlend greiðslukortavelta tæpum 26 milljörðum króna samanborið við rúmlega 18 milljarða í sama mánuði 2015. Um er að ræða rúmlega 40% aukningu á milli ára. Kortavelta erlendra ferðamanna í júní er sú mesta í einum mánuði frá upphafi en fyrra met var í júlí í fyrra, tæpir 24 milljarðar. Það sem…Lesa meira

true

2,2 milljónir í styrkvegi í Borgarbyggð

Úthlutun til handa sveitarfélaginu Borgarbyggð úr styrkvegasjóði fyrir árið 2016 nemur 2,2 milljónum króna. Þetta kemur fram í fundargerð umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefndar frá 6. júlí sl. Stjórnendur sveitarfélagsins sóttu um styrk að upphæð átta milljónir króna og er úthlutun úr sjóðnum því umtalsvert lægri en vonir stóðu til. „Fjölmörg verkefni liggja fyrir og ljóst…Lesa meira

true

Bresabúð verður opnuð á Akranesi í ágúst

Þar sem áður voru seld húsgögn í versluninni BjargI að Kalmannsvöllum 1a er nú unnið við að setja upp hillur og búnað í húsnæðið svo ný verslun geti opnað. „Við erum að fara opna verslun sem er hugsuð fyrir almenning en þó að miklu leyti fyrir iðnaðarmenn. Við munum selja raflagnaefni, pípulagnaefni, hreinlætistæki, málningu og…Lesa meira

true

Reykhóladagar hófust í dag

Byggðahátíðin Reykhóladagar er haldin hátíðleg dagana 21.-24. júlí. Á dagskrá er fjöldi viðburða víðs vegar um Reykhólasveit. Sú breyting verður frá fyrri árum að ekki verður formleg keppni um best skreytta húsið í Reykhólasveit. Íbúar eru þess í stað hvattir til að skreyta hús sín ánægjunnar vegna og njóta þess að gera fínt í hverfinu…Lesa meira

true

Rúta lenti á fólksbíl

Alls urðu 12 umferðaróhöpp í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku, flest minniháttar og án meiðsla, að sögn Theódórs Þórðarsonar varðstjóra. Rúta lenti aftan á fólksbíl við afleggjaran að bænum Munaðarnesi á mánudaginn. Fimm ára barn sem var farþegi í fólksbílnum fótbrotnaði og var flutt á sjúkrahús. Allir í fólksbílnum voru í öryggisbeltum og…Lesa meira

true

Sveitamarkaður í Nesi á laugardag

Sveitamarkaður Framfarafélags Borgarfjarðar verður í annað skipti í sumar haldinn í Nesi í Reykholtsdal næsta laugardag frá klukkan 13 til 17. Fjölbreytt úrval spennandi varnings verður til sölu. Nefna má náttúruleg steinefni unnin úr heita vatninu, afurðir beint frá býli, kindaskinn, fatnaður, skartgripir, grænmeti, jarðaber og margt fleira. Síðan er vöfflusala Ungmennafélags Reykdæla á sínum…Lesa meira

true

Baggað í Borgarfirði

Það má með sanni segja að veðrið hafi leikið við landsmenn upp á síðkastið, þá ekki síst í uppsveitum Borgarfjarðar. Bændur hafa þar á bæjum verið duglegir við að nýta blíðviðrið í heyannir fyrir veturinn. Þá eru stórvirku rúllu- og pökkunarvélarnar dregnar fram og látnar leika listir sínar við túnin á methraða. En við og…Lesa meira