Fréttir

true

Einstakt tækifæri til að verða hjólabær Íslands

„Allar rannsóknir sýna að því betur sem búið er að hjólandi og gangangi vegfarendum, því meiri líkur eru á að fólk nýti sér vistvænan ferðamáta,“ segir Ása Katrín Bjarnadóttir í samtali við Skessuhorn. Hún útskrifaðist með B.S.-gráðu í landslagsarkitektúr frá Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri föstudaginn 5. júní síðastliðinn. Í lokaverkefni sínu hannaði Ása hjólastofnstíg fyrir…Lesa meira

true

Þrjátíu ára afmælismót SjóSnæ

Það var líf og fjör á bryggjunni í Ólafsvík um síðustu helgi þegar Sjóstangveiðifélag Snæfellsness hélt upp á 30 ára afmæli sitt með sjóstangveiðimóti. Góð stemning og mikið keppnisskap var meðal manna um efstu sætin og allir höfðu gaman af. „Þetta mót tókst frábærlega,“ sagði Sigurjón Helgi Hjelm formaður SjóSnæ í samtali við Skessuhorn. „Allir…Lesa meira

true

Kvennahlaupið var á laugardaginn

Síðastliðinn laugardag fór Kvennahlaup ÍSÍ fram í 31. skipti. Frábært hlaupaveður var víðast hvar á landinu og þátttakendur geisluðu af orku og krafti, segir í tilkynningu frá ÍSÍ. Þokkaleg þátttaka var í hlaupinu og gert ráð fyrir að um 8.000 konur hafi tekið þátt á hátt í 70 stöðum um allt land. Að vanda var…Lesa meira

true

Leggja til lækkun aflamarks í þorski en ýsukvótinn verði aukinn

Hafrannsóknastofnun hefur nú kynnt úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. „Á grundvelli langtímamarkmiða um sjálfbæra nýtingu er lagt til aflamark fyrir á fjórða tug stofna, sem miðast við varúðarsjónarmið og hámarksnýtingu til lengri tíma litið,“ segir í frétt frá stofnuninni. Lögð er til 6% lækkun á aflamarki þorsks byggt á aflareglu stjórnvalda,…Lesa meira

true

Norðurálsmótið framundan

Hið árlega Norðurálsmót í knattspyrnu verður haldið á Akranesi dagana 18.-21. júní næstkomandi. Verður þetta í 35. skiptið sem mótið fer fram. Í ár fer mótið í fyrsta sinn fram í tvennu lagi, að því er fram kemur í tilkynningu frá ÍA. Á morgun, fimmtudaginn 18. júní, verður eins dags mót fyrir drengi og stúlkur…Lesa meira

true

Straumlaust í Lundarreykjadal eftir hádegið á fimmtudag

Rafmagnslaust verður í Lundarreykjadal í Borgarfirði, ofan Skálpastaða, fimmtudaginn 18. júní frá kl. 13:00 til kl 15:00 vegna vinnu við spennistöð Snartarstöðum. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof. -fréttatilkLesa meira

true

Sigurður Þór er nýr eldvarnarfulltrúi

Sigurður Þór Elísson hefur verið ráðinn í starf eldvarnareftirlitsfulltrúa hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar, en hann hefur starfað við slökkviliðið frá árinu 2002. Sigurður hlaut löggildingu sem slökkviliðsmaður árið 2008 og hefur undanfarin þrjú ár starfað sem annar tveggja þjálfunarstjóra liðsins. „Sigurður Þór hefur frá 2018 starfað við hlið slökkviliðsstjóra SAH við m.a. eldvarnareftirlit og…Lesa meira

true

Skógarbændur skoða Ferstikluskóg

Hefð er fyrir því að Félag skógarbænda á Vesturlandi komi saman sem næst Jónsmessu og þá hjá einhverjum skógarbónda innan félagsins og skoði skógræktina hjá honum. Nú í ár bjóða skógarbændurnir á Ferstiklu í Hvalfjarðarsveit, hjónin Margrét Stefánsdóttir og Guðmundur Rúnar Vífilsson, í heimsókn og skógargöngu þriðjudaginn 23. júní. „Mæting er klukkan 18.00 og þá…Lesa meira

true

Dregið í bikarnum

Dregið var í 32 liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu og 16 liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna á laugardaginn. Leikið verður í Mjólkurbikar karla dagana 23.-25. júní næstkomandi. Þar voru ÍA og Víkingur Ó. í pottinum. Drátturinn fór á þá leið að ÍA mætir Kórdrengjum á útivelli og Víkingur Ó. tekur á móti nafna sínum úr…Lesa meira