Fréttir

true

Fúsi Fljótsdælingur hefur reynt ýmislegt um ævina

Vigfús Friðriksson, betur þekktur sem Fúsi Fljótsdælingur, er orðinn mörgum Borgfirðingum og nærsveitamönnum góðkunnur. Undanfarin tvö ár hefur hann starfað sem sölumaður í Kaupfélagi Borgfirðinga og lætur vel af þeim vinnustað. Hann býr nú á Bifröst ásamt eiginkonu sinni, Guðveigu Eyglóardóttur hótelstýru. Hún er Borgnesingur en Fúsi er, eins og viðurnefnið gefur til kynna, Fljótsdælingur…Lesa meira

true

Umhverfisskipulag getur stuðlað að bættri lýðheilsu

Anna Kristín Guðmundsdóttir nemur umhverfisskipulag við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Fékk hún í vetur það verkefni að hanna vistvæna götumynd á Akranesi. Var það liður í námskeiðinu Umhverfisskipulag og lýðheilsa. Verkefnið hófst sem hópverkefni þar sem greint var allt frá umferð til ráðandi lita á svæðinu sem til umfjöllunar er. Að því loknu skiluðu nemendur…Lesa meira

true

KB mótaröðinni lokið þetta árið

Síðasta mótið í KB mótaröðinni í hestaíþróttum fór fram í Faxaborg um liðna helgi. Mótið gekk vel fyrir sig í alla staði og var árangur keppenda góður, að sögn mótshaldara. Það var LIT liðið (lið Lögfræðistofu Inga Tryggvasonar) sem bar sigur úr býtum í liðakeppninni en skammt á hæla þess kom lið Líflands, Berserkir urðu…Lesa meira

true

Leikarinn veiddi stærsta þorsk sem vitað er um á sjóstangveiðimóti

Sjóstangaveiðifélagið Skipaskagi á Akranesi stóð fyrir innanfélagsmóti í sjóstangveiði síðastliðinn laugardag í frábæru veðri. Var þetta í 22. skipti sem mótið er haldið og tóku 23 einstaklingar þátt á sex bátum, þar af sex nýliðar. Jóhannes Simonsen formaður Skipaskaga var aflahæstur karla með 384,55 kg og Ágústa S Þórðardóttir var aflahæst kvenna með 104,1 kg.…Lesa meira

true

Stórtónleikar á Akranesi í kvöld

Í kvöld, þriðjudaginn 22. mars, flytur Kór Akraneskirkju St John Passion (Jóhnnesarpassíu) eftir enska kórtónskáldið Bob Chilcott. Tónverkið hefur ekki verið flutt áður á Íslandi og er því um stóran viðburð að ræða. Að sögn Sveins Arnars Sæmundssonar organista og kórstjóra er þetta stærsta einstaka verkefnið sem hann hefur ráðist í með kórnum frá því…Lesa meira

true

Eva Margét glansaði inn í úrslit

„Þú ert Borgfirðingum til sóma, nær og fjær,“ sagði Borgfirðingurinn Jakob Frímann Magnússon, einn dómara í Ísland Got Talent, í þættinum á sunnudaginn á Stöð2. Þetta sagði Stuðmaðurinn eftir magnaða frammistöðu söngkonunnar Evu Margrétar í þriðja og síðasta undanúrslitaþættinum. Eva Margrét er ættuð úr Borgarnesi, alin upp í Reykholtsdalnum en stundar nám við Landbúnaðarháskóla Íslands…Lesa meira

true

Blóði safnað í Borgarnesi í dag

Blóðbankabíllinn verður við N1 í Borgarnesi í dag, þriðjudaginn 22. mars frá kl. 10:00-17:00 til að safna blóði. Í tilkynningu frá Blóðbankanum segir að allir séu velkomnir. Sjötíu blóðgjafir á dag þarf til að uppfylla lágmarkslager Blóðbankans. Munið að blóðgjöf er lífgjöf!Lesa meira

true

Hoppukastalafjör á pálmasunnudegi

Það hefur skapast hefð fyrir því að á pálmasunnudegi sé kirkjuskóli í Grundarfjarðarkirkju og eftir kirkjuskólann sé hoppukastalafjör uppi í íþróttahúsi bæjarins. Það var engin breyting á að þessu sinni þegar ærslafullir krakkar hoppuðu af gríð og erg í íþróttahúsinu. Séra Aðalsteinn Þorvaldsson hefur séð um hoppukastalafjörið og var engin breyting á því í þetta…Lesa meira

true

Kosningu lýkur á morgun um búvörusamningana

Búnaðarsamtök Vesturlands minna á kosninguna um búvörusamningana, en henni lýkur á morgun 22. mars. „Kosningin á Bændatorginu verður opin til miðnættis annað kvöld, 22. mars, en þeir sem nota pappírsatkvæði verða að póstleggja þau á morgun 22. mars í síðasta lagi. Miklu skiptir að þátttaka verði sem best. Símavakt verður hjá Bændasamtökum Íslands annað kvöld. …Lesa meira

true

Óskar Þór er rósahafi vikunnar í Vetrarkærleiknum

Óskar Þór Óskarsson fékk rós vikunnar í Vetrar-Kærleik Blómasetursins – Kaffi kyrrðar í Borgarnesi. Rósina fékk Óskar fyrir, eins og segir í tilnefningunni: „Að safna heimildum í máli og myndum og varðveita þannig, á skemmtilegan og mannlegan hátt, sögu liðins tíma. Hann er snillingur og frábær náungi.“Lesa meira