Fréttir

true

Einn missti stýrið og annar fékk í skrúfuna

Síðastliðinn miðvikudag hófst vinna við að koma fyrir nýrri skólplögn sem liggja á frá hreinsunar- og dælustöðinni í Brákarey í Borgarnesi og út á fjörðinn. Lögnin er 450 millimetrar í þvermál og 670 metra löng. Starfsmenn Ístaks sjá um að koma lögninni fyrir í verktöku fyrir Veitur ohf. Gekk framkvæmdin á miðvikudag ekki eins og…Lesa meira

true

Komin heim eftir tveggja ára siglingu

Hjónin og Skagamennirnir Kristófer Oliversson og Svanfríður Jónsdóttir komu til hafnar Akranesi í gær eftir tveggja ára siglingu um heimsins höf á skútunni Hug frá Reykjavík. Sigling þeirra hófst í Króatíu fyrir fyrir tveimur árum síðan. Þaðan sigldu þau til Kanaríeyja, svo Grænhöfðaeyja og þaðan til Santki Lúsíu í austurhluta Karabíska hafsins. „Þaðan förum við…Lesa meira

true

Á góðri stund í Grundarfirði um helgina

Bæjarhátíðin Á góðri stund haldin er haldin hátíðleg 18. árið í röð í Grundarfirði um helgina, en í ár er sjötta árið sem Hátíðarfélagið sér um hana. Aldís Ásgeirsdóttir er framkvæmdastjóri hátíðarinnar í ár og segir hún að undirbúningur gangi vel. „Það gengur mjög vel og allt að verða klárt,“ segir Aldís í samtali við…Lesa meira

true

Bygging íbúðarhúsnæðis að aukast aftur

Fyrirtækið Loftorka í Borgarnesi var stofnað árið 1962 og hefur alla tíð verið áberandi í byggingageiranum, ekki síst á Vesturlandi. Loftorka er afgerandi stærsti framleiðandi landsins í forsteyptum byggingaeiningum og eini steinröraframleiðandi á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa rúmlega eitt hundrað manns þegar allt er talið. Þar af er drjúgur hluti starfsfólks háskólamenntaður, verk- og tæknifræðingar…Lesa meira

true

Jónas Sig og Ritvélarnar í Brúarási

Jónas Sig og hljómsveit hans Ritvélar framtíðarinnar verða í útlegð vikuna 22.-28. júlí þegar þau fara hringinn í kringum landið og spila á sjö stöðum á jafn mörgum dögum. Jónas og félagar munu meðal annars koma við í hinu nýja og endurbætta félagsheimili Brúarási í Borgarnesi og halda þar tónleika mánudagskvöldið 25. júlí klukkan 20:00.…Lesa meira

true

Sýningin Dalablóð í Ólafsdal er um formæður listakonunnar

Guðrún Tryggvadóttir myndlistarkona opnar málverkasýninguna „Dalablóð“ í Ólafsdal við Gilsfjörð næstkomandi laugardag klukkan 14:00. Sýningin verður uppi til 14. ágúst nk. „Á undanförnum mánuðum og árum hef ég unnið að verkum sem fjalla um fjórðu víddina; tímann, birtingarmynd hans, tölfræðilegar staðreyndir í endurnýjun kynslóðanna og þau mynstur sem þær framkalla. Ég þurfti að leita leiða…Lesa meira

true

Breytingar á þjálfarateymi Skallagríms

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur gengið frá nýjum samningi við Finn Jónsson um þjálfun karlaliðs félagsins til 2019, eða næstu þriggja keppnistímabila. Finnur hefur þjálfað meistaraflokk Skallagríms frá því í ársbyrjun 2015. Hann var við stjórnvölinn þegar liðið tryggði sér sæti í Domino’s deild karla á nýjan leik eftir sigur í oddaleik í úrslitaeinvígi við Fjölni í úrslitakeppni 1.…Lesa meira

true

Þekktur matarbloggari heimsækir Café Kaja

Eins og Skessuhorn hefur áður greint frá opnaði Karen Jónsdóttir kaffihús á Akranesi fyrr í sumar og gaf því nafnið Café Kaja. Er það eina lífræna kaffihús landsins, þar sem allir drykkir og meðlæti er unnið úr lífrænu hráefni. Kaffihúsið vakti athygli matgæðingsins Alberts Eiríkssonar, sem undanfarin fimm ár hefur haldið úti matarblogginu vinsæla Alberteldar.com.…Lesa meira

true

Tveir Snæfellingar í æfingahópnum

Undirbúningur Íslenska karlalandsliðsins í körfuknattleik fyrir Evrópumótið 2017 hefst formlega í dag, miðvikudag 20. júlí. Landsliðsþjálfarateymið hefur boðað 22 leikmenn til æfinga með landsliðinu frá og með deginum í dag, en alls eru 41 leikmaður í æfingahópnum. Æft verður fram að helgi og þá verður hópurinn skorinn niður áður en æfingar hefjast að nýju á…Lesa meira

true

Síðast fullt hús í Frostaskjóli 1987

Bæði karla- og kvennalið ÍA hafa borið sigurorð af erkifjendunum í KR á útivelli í sumar. Er það í fyrsta sinn síðan 1987 sem Skagaliðin tvö sækja fullt hús stiga í Frostaskjóli í efstu deildum karla og kvenna í knattspyrnu. Megan Dunnigan skoraði bæði mörk ÍA þegar liðið vann KR 2-0 í gær. Var það…Lesa meira