Fréttir

true

„Sjómennskan á við mig, það er bara svoleiðis“

„Ég fylgdist alltaf með bátunum fyrir framan Malarrif þegar ég var lítill strákur, vertíðarbátum á veturna og snurvoðarbátum á sumrin. Mér fannst þetta eitthvað heillandi, að sjá bátana í bongóblíðu, alveg uppi í fjöru að mokveiða fisk. Þetta var spennandi og líf í kringum þetta allt saman,“ segir hann. „Þegar maður byrjaði síðan sjálfur á…Lesa meira

true

Kanna möguleika á nýsköpunarsetri í Dölum

Þeirri hugmynd hefur verið varpað fram að koma á fót nýsköpunar- og frumkvöðlasetri í Dalabyggð. Málið var til umræðu á fundi byggðarráðs 28. maí síðastliðinn og var sveitarstjóra falið að vinna áfram að því. Í stuttu máli felst stofnun slíks seturs í því að útbúa aðstöðu fyrir hugmyndaríkt fólk, þar sem það gæti sinnt verkefnum…Lesa meira

true

Snæfellingur hélt fyrsta hestamannamótið eftir Covid

Fyrsta hestamót sumarsins á Vesturlandi, eftir lokanir vegna Covid-19, var haldið um liðna helgi í Grundarfirði. Var það hestamannafélagið Snæfellingur sem hélt mótið en það var opið öllum. Þátttaka á mótinu var góð og voru margir frábærir hestar sem sáust í brautinni þennan dag. Helstu úrslit voru þessi:   Barnaflokkur – fjórgangur Helena Rán Gunnarsdóttir…Lesa meira

true

Íbúum á Vesturlandi fækkaði um tvo á hálfu ári

Þjóðskrá hefur nú birt íbúafjölda í sveitarfélögum landsins 1. júní 2020. Ef íbúafjöldi nú er borinn saman við fjölda 1. desember síðastliðinn kemur í ljós að íbúum á Vesturlandi hefur fækkað um tvo á þessu sex mánaða tímabili, eru nú 16.666 talsins. Íbúum hefur fjölgað á Akranesi (7), Hvalfjarðarsveit (5), Grundarfirði (1), Eyja- og Miklaholtshreppi…Lesa meira

true

Byggð rís á Langasandi – MYNDIR

Framkvæmdir stóðu sem hæst þegar Skessuhorn kom að Langasandi nú í morgun. Jarðvinnu var lokið og mjög víða langt komið að steypa útveggi þeirra fjölmörgu sandkastala sem reistir voru á sandinum þennan morguninn. Verktakar voru nemendur í 1.-6. bekk Brekkubæjarskóla, en vordagur er í skólanum í dag. Var hann nýttur á Langasandi, þar sem blásið…Lesa meira

true

Bar sigur úr býtum í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna

Appið „Með okkar augum“ gæti komið blindu fólki að góðum notum Sigurður Brynjarsson, nemandi í 6. bekk EHÞ í Grundaskóla á Akranesi, hlaut í gær aðalverðlaun í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2020. Verðlaunin hlýtur hann fyrir hugmynd sína „Með okkar augum.“ Í stuttu máli snýst hugmynd Sigurðar um þróun apps (smáforrits) fyrir blinda. Appið tengist sjálboðaliðum með…Lesa meira

true

Laxveiðisumarið hefst formlega í fyrramálið

Hefð er fyrir því að laxveiðisumarið hér á landi hefjist formlega þegar fyrstu veiðimenn kasta flugunni í Norðurá í Borgarfirði. Undanfarin ár hafa ýmsum þekktum einstaklingum verið boðið að ríða á vaðið. Að þessu sinni verður það söngvarinn Helgi Björnsson og eiginkona hans Vilborg Halldórsdóttir sem hefja veiðar stundvíslega klukkan 8 í fyrramálið, að afloknum…Lesa meira

true

Brautskráning frá Menntaskóla Borgarfjarðar

Föstudaginn 29. maí voru 24 nemendur brautskráðir frá Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Sex nemendur voru brautskráðir af Félagsfræðabraut, fimm af Náttúrufræðibraut, þrír af Íþróttafræðibraut – náttúrufræðisviðið, tveir af Íþróttafræðibraut – félagsfræðisviði, fjórir af Náttúrufræðibraut – búfræðisviði, þrír af Opinni braut og einn af starfsbraut. Við athöfnina fór Lilja S. Ólafsdóttir aðstoðarskólameistari yfir skólaárið, Elís Dofri…Lesa meira

true

Gunnar Einarsson þjálfar Kára

Knattspyrnufélagið Kári hefur samið við Gunnar Einarsson um að taka við þjálfun liðsins. Var hann valinn úr hópi átta umsækjenda. Eins og áður hefur verið greint frá var Jón Aðalsteinn Kristjánsson ráðinn þjálfari liðsins síðasta haust en þurfti að láta af störfum nú í vor. Káramenn hófu leit að þjálfara og hafa núna ráðið Gunnar…Lesa meira

true

Útskrift frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi

Síðastliðinn föstudag voru 65 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Vegna samkomutakmarkana var fjöldi viðstaddra takmarkaður við 200 manns og var athöfnin því send út í streymi. Áður en formleg athöfn hófst fluttu nýstúdentar tónlistaratriði þar sem sungin voru nokkur lög við undirleik Birgis Þórissonar. Þorbjörg Ragnarsdóttir aðstoðarskólameistari setti athöfnina og Steinunn Inga Óttarsdóttir…Lesa meira