Fréttir

true

Afhenti VR tvö ný orlofshús í Svignaskarði

Í síðustu viku afhenti Eiríkur J. Ingólfsson byggingaverktaki í Borgarnesi Orlofssjóði VR tvö 80,5 fm ný orlofshús í Svignaskarði í Borgarfirði. Það var Emil Gústafsson sem tók við lyklavöldunum en hann fer með eignaumsýslu fyrir félagið. Húsin sem um ræðir eru tvö, Svignaskarð 38 og 42, og hafa verið í byggingu síðustu níu mánuði. Bygging…Lesa meira

true

Stór útskriftardagur í framhaldsskólunum

Nú er að ljúka mjög svo óvenjulegu skólaári í mennta- og fjölbrautaskólum í landshlutanum. Kórónaveiran hefur sett sinn svip á vorönnina og hafa nemendur þurft að aðlagast fjarkennslu og gjörólíkum kennsluháttum. Útskrifað verður úr þremur framhaldsskólum á Vesturalndi í dag. Skólastjórnendur hafa þurft að hagræða hátíðarhöldum í takti við reglur og takmarkanir sem í gildi…Lesa meira

true

Árvekni með börnum í sundi

„Ekki gleyma að fylgjast með mér“ er yfirskrift nýs árveknisátaks á sundstöðum sem Umhverfisstofnun ýtir úr vör í dag. Markmið átaksins er að minna foreldra, forráðamenn og aðra á að fylgjast vel með börnum yngri en tíu ára þegar þeir fara með þeim í sund. „Óhætt er að segja að landsmenn hafi tekið því fagnandi…Lesa meira

true

Verðbólga mælist nú 2,6%

Vísitala neysluverðs mældist 480,1 stig í maí mánuði samkvæmt nýjustu mælingu Hagstofunnar sem birt var á fimmtudaginn. Verðlag hækkaði um 0,54% milli mánaða og mælist verðbólga nú 2,6% á ársgrundvelli. Meiri hækkun mældist ef horft er fram hjá áhrifum húsnæðiskostnaðar, eða 0,88% milli mánaða, og mælist verðbólga án húsnæðis nú einnig 2,6%. Verð á mat-…Lesa meira

true

Viðhaldsstopp framlengt vegna stöðu á stálmörkuðum

Slökkt verður á einum ofni járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga fram á sumarið. Þegar Skessuhorn heyrði í Einari Þorsteinssyni forstjóra fyrr í vikunni var reyndar slökkt á öllum þremur, en tveir þeirra voru aðeins úti vegna hefðbundinna þátta. „Einn ofn verður úti eitthvað lengur og búast má við því að hann verði það eitthvað vel fram…Lesa meira

true

Slysavarnadeild Dalasýslu gaf reiðhjólahjálma

Slysavarnadeild Dalasýslu gaf nýverið öllum börnum í 5. og 6. bekk Auðarskóla reiðhjólahjálma og minnti um leið á mikilvægi þess að  nota hjálma þegar ferðast er um á reiðhjólum, línuskautum, hlaupahjólum og sambærilegum tækjum. Undir venjulegum kringumstæðum hefðu hjálmarnir verið afhentir í Auðarskóla en vegna Covid-19 og takmörkunar á umgengni í skólum fór hópur félaga…Lesa meira

true

Skvett úr klaufunum í Dölum um Hvítasunnuhelgina

Nokkrir ferðaþjónar í Dölum hafa tekið sig saman og búið til fínustu dagskrá fyrir komandi Hvítasunnuhelgi. Þangað er upplagt að fara, ekki síst fyrir fjölskyldufólk sem getur hæglega fundið eitthvað við sitt hæfi. Dagskráin nær frá föstudegi og til mánudagsins, 2. í Hvítasunnu. Meðal annars verður kúnum á Erpsstöðum hleyptu út með tilheyrandi bægslagangi, samverustund…Lesa meira

true

Nauðsynlegt að efla og stækka slökkvilið á landsbyggðinni

Átta opinber störf færast á Sauðárkrók á næstunni með breytingum á sviði brunavarna, en þær heyra undir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) eftir sameiningu Íbúðalánasjóðs og Mannvirkjastofnunar um síðustu áramót. Sú eining sem sinnir skipulagningu brunaeftirlits verður þar með hluti af starfsstöð HMS á Sauðárkróki. Fyrir starfa þar um tuttugu manns við úthlutun húsnæðisbóta, í þjónustuveri…Lesa meira

true

Bílabúð Benna 45 ára

Bílabúð Benna er stofnað í maí árið 1975 og fagnar því 45 ára afmæli sínu í ár. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að upphafið á 45 ára sögu fyrirtækisins megi rekja til þess að Benedikt Eyjólfsson og Margrét Beta Gunnarsdóttir, þá bæði 17 ára gömul, höfðu komið sér upp aðstöðu fyrir bíla- og mótorhjólaviðgerðir, í…Lesa meira

true

Veitur hyggja á fjölmargar framkvæmdir á Vesturlandi í sumar

Á stjórnarfundi Veitna í vor samþykkti stjórn Veitna ýmsar aðgerðir til að bregðast við þeim afleiðingum sem kórónafaraldurinn hefur haft á atvinnulíf landsins. Fyrirtækið vill sýna samfélagslega ábyrgð og auka fjárfestingar í mannaflsfrekum verkefnum sem hafa munu mikil áhrif í samfélaginu, þar á meðal hér á Vesturlandi. „Leiðarljósið er að viðhalda atvinnustigi í landinu eins…Lesa meira