Fréttir

true

Hreyfivika er nú hafin

Árleg hreyfivika, Now We Move, hófst í dag og stendur yfir fram á næsta sunnudag. Verkefnið er hluti af stærstu lýðheilsuherferð í Evrópu og hefur verið fastur liður á hverju ári frá árinu 2012 en það er UMFÍ sem sér um að skipuleggja og halda um viðburðinn hér á landi. Markmið verkefnisins er að fjölga…Lesa meira

true

Frumvarp um ferðagjöf komið í kynningu

Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir ráðherra ferðamála hefur kynnt í ríkisstjórn væntalegt frumvarp til laga um ferðagjöf. Um er að ræða útfærslu á áður boðaðri aðgerð ríkisstjórnarinnar um 1,5 milljarða króna innspýtingu til að örva innlenda eftirspurn eftir ferðaþjónustu. Í frumvarpinu kemur fram að ferðagjöf er stafræn 5.000 króna inneign sem stjórnvöld gefa út til einstaklinga…Lesa meira

true

Ritueggjatínsla í Birgiskletti

Eyjan Birgisklettur sem er skammt vestur af Stykkishólmi er í eigu bænda á Þingvöllum í Helgafellssveit. Ábúendur hafa nýtt eyjuna til eggjatínslu svo langt sem menn muna. Í gamla daga voru að jafnaði farnar tvær eggjatínsluferðir að sumri en í seinni tíð er farin ein ferð svona aðallega til að menn fái bragðið og haldi…Lesa meira

true

Sviptingar á fyrsta stórmóti ársins í golfi

Miklar sviptingar voru í gær á lokahring B-59 Hótel-mótsins í golfi sem spilað var á Garðavelli á Akranesi undir stjórn Golfklúbbsins Leynis. Mótið er eitt af sterkustu mótum sumarsins og allir fremstu spilarar landsins tóku þátt. Á mótinu voru leiknir þrír hringir, alls 54 holur, frá föstudegi til sunnudags. Gríðarleg spenna var á lokadegi mótsins…Lesa meira

true

Skólahljómsveit spiluðu fyrir íbúa á Fellaskjóli

Hljómsveit Tónlistarskóla Grundarfjarðar tróð upp fyrir utan Dvalarheimilið Fellaskjól síðasta fimmtudag. Þá var stillt upp og talið í og nokkrir fallegir slagarar spilaðir. Tónleikarnir féllu vel í kramið hjá heimilisfólki sem dillaði sér í takti við lögin og naut líðandi stundar.Lesa meira

true

Býður Jökul til sölu

Í nýjasta tölublaði bæjarblaðsins Jökuls í Ólafsvík tilkynnir Jóhannes Ólafsson ritstjóri og útgefandi hjá Steinprenti að útgáfan sé til sölu ef viðunandi tilboð fæst. Jökull hefur komið út vikulega frá 8. mars 2001 og fjallar blaðið um málefni líðandi stundar í Snæfellsbæ og víðar á Snæfellsnesi.Lesa meira

true

Nýtt diplómanám í skapandi greinum á Bifröst

Við Háskólann á Bifröst verður í haust boðið upp á inngangsnámskeið í eins árs diplómanámi í skapandi greinum. „Þetta er hagnýtt nám í skapandi greinum sem er ætlað að vera upplýsandi fyrir ungt fólk sem er ennþá leitandi eftir framhaldsskólagöngu sína eða hefur flosnað upp úr námi,“ segir Anna Hildur Hildibrandsdóttir kvikmyndaframleiðandi og aðjúnkt við…Lesa meira

true

Safna fyrir gufubaði til að lykta ekki eins illa

Í kjölfar gróðureldanna í Norðurárdal á mánudaginn í síðustu viku var tekin ákvörðun í hópi slökkviliðsmanna í Borgarbyggð. „Eftir svona langt og strangt slökkvistarf eins og í Norðurárdal verða menn illa súrir og lyktandi þegar heim er komið. Staðreyndin er nefnilega sú að nær ómögulegt er að hreinsa lyktina af sér í venjulegri sturtu eða…Lesa meira

true

Eiríksjökull setti húfu á kollinn

Það var óvenjulegt skýjafar yfir uppsveitum Borgarfjarðar í dag. Eiríksjökull tók til sín vindaský sem sveipaði koll hans húfu eins og sjá má. Josefina Morell tók myndinni frá brúnni yfir Hvítá við Bjarnastöðum.Lesa meira

true

Hlaupbangsar í umferð sem innihalda kannabis og morfín

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum birti nú rétt í þessu ábendingu til foreldra varðandi hlaupbangsa (Gummy bears) sem innihalda kannabis og hugsanlega fleiri efni. Ungmennum hefur nú um helgina verið boðið slíkt stórhættulegt sælgæti og vitað um tvö tilfelli þar sem 13 og 14 ára stúlkur voru fluttar meðvitundarlausar á sjúkrahús eftir að hafa neytt þess. „Talið…Lesa meira