
Búið er að friðlýsa elstu skólahúsin á Bifröst í Borgarfirði. Það var Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, sem tók ákvörðun þar að lútandi að fenginni tillögu Minjastofnunar Íslands. Friðlýsingin tekur til ytra borðs samkomuhúss frá 1950, veggfastra innréttinga í samkomusal og setustofu samkomuhúss, Kringluna, ytra borðs tengigangs milli samkomuhúss og gistiálmu auk veggmyndar á tengigangi…Lesa meira








