Fréttir

true

Læknaskortur útskýrir langan biðtíma í Borgarnesi

Nú þegar kórónufaraldurinn hefur gengið yfir heiminn hefur sérstaklega mikið álag verið á heilbrigðiskerfið okkar og þá framlínustarfsmenn sem þar starfa. Í Borgarnesi hefur borið á því undanfarið að erfitt hefur verið að fá tíma hjá heimilislækni en að sögn Lindu Kristjánsdóttur, yfirlæknis Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í Borgarnesi, skýrist það af manneklu. Einn sérfræðilæknir í 40%…Lesa meira

true

Lionskonur færðu starfsbraut FVA fjórar spjaldtölvur

Konur í Lionsklúbbnum Eðnu á Akranesi komu færandi hendi í Fjölbrautaskóla Vesturlands nýverið. Tilefnið var að færa skólanum að gjöf fjórar nýjar spjaldtölvur en þær verða notaðar til kennslu á starfsbraut skólans. Það voru þær Arndís Halla Guðmundsdóttir deildarstjóri á starfsbraut og Steinunn Inga Óttarsdóttir skólameistari sem veittu gjöfinni viðtöku og þökkuðu Eðnukonum kærlega fyrir…Lesa meira

true

Leita að nýju leiktæki til að taka við af Abbadís í Ölveri

Ölver er við rætur Hafnarfjalls og þar hafa um margra ára skeið verið starfræktar sumarbúðir, aðallega fyrir stúlkur, á vegum KFUM og KFUK. Sumarbúðirnar hafa verið mjög vinsælar og hefur skráning síðustu ár verið mjög góð. Að sögn Ernu Bjarkar Harðardóttur, gjaldkera í stjórn, eru margar stúlkur sem koma ár eftir ár í Ölver. Í…Lesa meira

true

Samið um dýralæknaþjónustu í dreifðum byggðum

Samningar hafa tekist við dýralækna í dreifðum byggðum um að sinna nauðsynlegri dýralæknaþjónustu til næstu fimm ára. Samhliða voru gerðir verkkaupasamningar við dýralækna um að sinna opinberum störfum fyrir Matvælastofnun. Gerir það stofnuninni kleift að fækka héraðsdýralæknum og hagræða í rekstri. Samningar við dýralækna koma í kjölfarið á starfi starfshóps sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipaði…Lesa meira

true

Rím á Refsstöðum verður opnað í sumar

Í júní á síðasta ári var stórt og mikið eldra hús tekið af stalli sínum á Akureyri og flutt í tveimur hlutum að Refsstöðum í Hálsasveit. Hús þetta var byggt árið 1938 og hýsti lengst af bátasmiðju á Eyrinni. Hjónin Anna Lísa Hilmarsdóttir og Brynjar Bergsson keyptu húsið og fluttu á melinn vestan við stórt…Lesa meira

true

Hitamyndavél í dróna reyndist vel

Síðastliðið mánudagskvöld, þegar gróðureldar blossuðu upp í Grábrókarhrauni, voru félagar í Björgunarsveitinni Heiðari kallaðir út til aðstoðar slökkviliðsmönnum. „Við fórum með sexhjólið sem nýttist vel til að ferja mannskap og búnað um erfitt landslag,“ segir Arnar Grétarsson formaður Heiðars. „Við tókum með í ferðina nýlegan hitamyndavélardróna okkar. Hann reyndist ómetanlegur fyrir slökkviliðið til að meta…Lesa meira

true

Aðalfundur UMFG

Ungmennafélag Grundarfjarðar hélt aðalfund félagsins fimmtudaginn 14. maí síðastliðinn. Þar voru hefðbundin aðalfundarstörf á dagskrá. Það urðu mannabreytingar í stjórn en Halldóra Dögg Hjörleifsdóttir og Dagný Ósk Guðlaugsdóttir gengu úr stjórninni en Halldóra hafði gegnt stjórnarstörfum á annan áratug. Fundurinn var haldinn í íþróttahúsi Grundarfjarðar og þar var passað upp á að nægt bil væri…Lesa meira

true

Útvarpsstöðin K100 sendir út frá Borgarnesi á morgun

Útvarpsstöðin K100 ætlar að kynnast landinu betur í maí og júní og kynna áhugaverða staði sem eru að bjóða upp á spennandi hluti í sumar. Fyrsti áfangastaður stöðvarinnar verður Borgarbyggð. Öll dagskrá og fréttir stöðvarinnar verða í beinni útsendingu frá Borgarnesi á föstudaginn, 22. maí. „Morgunþáttur stöðvarinnar, Ísland vaknar, með þau Ásgeir Pál, Jón Axel…Lesa meira

true

Fornbílar færðir til skoðunar

Það var líf og fjör í skoðunarstöð Frumherja í Borgarnesi síðdegis í gær. Þá var komið að árlegum skoðunardegi fornbíla. Hver af öðrum voru þeir ræstir í geymslum sínum í Brákarey og víðar um héraðið og brunað á Sólbakkann. Fornbílar skulu skoðaðir annað hvert ár en líkt og með nýrri bíla er farið yfir að…Lesa meira

true

Lionsklúbbar gefa fæðingarúm til HVE á Akranesi

Á dögunum færðu Lionsklúbbar á starfssvæði Heilbrigðisstofnunar Vesturlands fæðingadeildinni á Akranesi nýjan fæðingabekk að gjöf. Verðmæti gjafarinnar er um 2,7 milljónir króna. Það var Lionsklúbburinn Harpa í Stykkishólmi sem fékk ábendingu um það í vetur að komið væri að endurnýjun á fæðingabekkjum deildarinnar, en ætla má að velflestir nýfæddir íbúar svæðisins líti þar fyrst dagsins…Lesa meira