Fréttir

true

Bygging íbúðarhúsnæðis að aukast aftur

Fyrirtækið Loftorka í Borgarnesi var stofnað árið 1962 og hefur alla tíð verið áberandi í byggingageiranum, ekki síst á Vesturlandi. Loftorka er afgerandi stærsti framleiðandi landsins í forsteyptum byggingaeiningum og eini steinröraframleiðandi á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa rúmlega eitt hundrað manns þegar allt er talið. Þar af er drjúgur hluti starfsfólks háskólamenntaður, verk- og tæknifræðingar…Lesa meira

true

Jónas Sig og Ritvélarnar í Brúarási

Jónas Sig og hljómsveit hans Ritvélar framtíðarinnar verða í útlegð vikuna 22.-28. júlí þegar þau fara hringinn í kringum landið og spila á sjö stöðum á jafn mörgum dögum. Jónas og félagar munu meðal annars koma við í hinu nýja og endurbætta félagsheimili Brúarási í Borgarnesi og halda þar tónleika mánudagskvöldið 25. júlí klukkan 20:00.…Lesa meira

true

Sýningin Dalablóð í Ólafsdal er um formæður listakonunnar

Guðrún Tryggvadóttir myndlistarkona opnar málverkasýninguna „Dalablóð“ í Ólafsdal við Gilsfjörð næstkomandi laugardag klukkan 14:00. Sýningin verður uppi til 14. ágúst nk. „Á undanförnum mánuðum og árum hef ég unnið að verkum sem fjalla um fjórðu víddina; tímann, birtingarmynd hans, tölfræðilegar staðreyndir í endurnýjun kynslóðanna og þau mynstur sem þær framkalla. Ég þurfti að leita leiða…Lesa meira

true

Breytingar á þjálfarateymi Skallagríms

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur gengið frá nýjum samningi við Finn Jónsson um þjálfun karlaliðs félagsins til 2019, eða næstu þriggja keppnistímabila. Finnur hefur þjálfað meistaraflokk Skallagríms frá því í ársbyrjun 2015. Hann var við stjórnvölinn þegar liðið tryggði sér sæti í Domino’s deild karla á nýjan leik eftir sigur í oddaleik í úrslitaeinvígi við Fjölni í úrslitakeppni 1.…Lesa meira

true

Þekktur matarbloggari heimsækir Café Kaja

Eins og Skessuhorn hefur áður greint frá opnaði Karen Jónsdóttir kaffihús á Akranesi fyrr í sumar og gaf því nafnið Café Kaja. Er það eina lífræna kaffihús landsins, þar sem allir drykkir og meðlæti er unnið úr lífrænu hráefni. Kaffihúsið vakti athygli matgæðingsins Alberts Eiríkssonar, sem undanfarin fimm ár hefur haldið úti matarblogginu vinsæla Alberteldar.com.…Lesa meira

true

Tveir Snæfellingar í æfingahópnum

Undirbúningur Íslenska karlalandsliðsins í körfuknattleik fyrir Evrópumótið 2017 hefst formlega í dag, miðvikudag 20. júlí. Landsliðsþjálfarateymið hefur boðað 22 leikmenn til æfinga með landsliðinu frá og með deginum í dag, en alls eru 41 leikmaður í æfingahópnum. Æft verður fram að helgi og þá verður hópurinn skorinn niður áður en æfingar hefjast að nýju á…Lesa meira

true

Síðast fullt hús í Frostaskjóli 1987

Bæði karla- og kvennalið ÍA hafa borið sigurorð af erkifjendunum í KR á útivelli í sumar. Er það í fyrsta sinn síðan 1987 sem Skagaliðin tvö sækja fullt hús stiga í Frostaskjóli í efstu deildum karla og kvenna í knattspyrnu. Megan Dunnigan skoraði bæði mörk ÍA þegar liðið vann KR 2-0 í gær. Var það…Lesa meira

true

Límtré Vírnet landaði risasamningi á Keflavíkurflugvelli

Byggingafyrirtækið Límtré Vírnet í Borgarnesi hefur samið við dótturfélag Icelandair um að reisa nýtt flugskýli sem hýsa á flugvélar Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Samningar náðust föstudaginn 8. júlí síðastliðinn og að sögn Stefáns Loga Haraldssonar, framkvæmdastjóra Límtrés Vírnets, er um risasamning að ræða. „Samningar af þessari stærð hafa ekki verið gerðir hjá félaginu áður, það er…Lesa meira

true

Töldu sig mega veiða í öllum ám og vötnum

Veiðimenn voru í óleyfi í Haukadalsá í Dölum í vikunni. „Þarna höfðu erlendir ferðamenn fengið rangar upplýsingar og misskilningur átt sér stað milli söluaðila veiðikorts og ferðamannanna. Þeim hafði verið sagt að þeir mættu veiða í öllum ám og vötnum á Íslandi. Misskilningurinn var snarlega leiðréttur og veiðivörður í Haukadalsá sagðist ekki ætla að gera…Lesa meira

true

Réttardagar ákveðnir í Reykhólasveit

Á fundi fjallskilanefndar Reykhólahrepps í gær, þriðjudaginn 19. júlí, voru ákveðnir réttardagar í sveitarfélaginu á hausti komanda. Réttað verður í Eyrarrétt í Kollafirði laugardaginn 10. september, í Króksfjarðarnesrétt viku síðar, 17. september og í Kinnarstaðarétt sunnudaginn 18. september.Lesa meira