
Þjóðhátíðardagur Norðmanna er í dag, 17. maí. Af því tilefni tók Guðjón S Brjánsson alþingismaður sig til og dró að húni fána frænda vorra í austri, utan við Ráðhús Akraness við Stillholt. Með honum í verkefninu voru ungir og efnilegir félagsmenn í Norræna félaginu, þeir Alexander Veigar og Guðjón Máni. Til hamingju með daginn Norðmenn!Lesa meira








