
„FÍB leggst eindregið gegn frumvarpi samgönguráðherra um samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir. Með þessu frumvarpi er stefnt inn á varasama braut einkavæðingar í vegakerfinu með tilheyrandi innheimtu vegtolla og dýrari lausnum en vera þyrfti,“ segir í umsögn Félags íslenskra bifreiðaeigenda um frumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar samgönguráðherra. Markmið frumvarpsins er sagt að auka fjármagn til vegaframkvæmda og flýta…Lesa meira








