Fréttir

true

Skýrsla barnaþings afhent ráðherrum

Skýrsla barnaþings 2019 verður afhent ráðherrum fyrir utan ráðherrabústaðinn í dag föstudaginn 8. maí klukkan 11:30 að loknum ríkisstjórnarfundi. Salvör Nordal mun afhenda ráðherrum skýrsluna ásamt ungmennum úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna og börnum sem tóku þátt á barnaþingi. „Eitt helsta markmið fyrsta barnaþingsins sem haldið var í Hörpu dagana 21. – 22.nóvember 2019, var að…Lesa meira

true

Meiri afgangur af rekstri Snæfellsbæjar en áætlað hafði verið

Rekstur Snæfellsbæjar gekk vel á síðasta ári og skilaði 325 milljóna króna afgangi. Er það töluvert betri niðurstaða en sá 53 milljóna króna afgangur sem gert hafði verið ráð fyrir í fjárhagsáætlun, eða sem nemur 272 milljónum króna. Þetta kom fram á bæjarstjórnarfundi í gær þar sem ársreikningur Snæfellsbæjar var samþykktur samhljóða eftir síðari umræðu.…Lesa meira

true

Mótmæla sömuleiðis ákvörðun sjávarútvegsráðherra

Á fundi bæjarstjórnar Snæfellsbæjar í gær var rætt um nýja reglugerð atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins frá 30. apríl síðastliðins varðandi bann við grásleppuveiðum frá og með aðfararnótt sunnudagsins 3. maí. Bæjarstjórn samþykkti samhljóða eftirfarandi bókun: „Bæjarstjórn Snæfellsbæjar tekur heilshugar undir mótmæli bæjarráðs Akraness og bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar og mótmælir fordæmalausri ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að stöðva…Lesa meira

true

Boltinn byrjar í júní

Ný drög að leikjaniðurröðun Íslandsmótsins í knattspyrnu hafa verið birt á vef Knattspyrnusambands Íslands. Upphaf móta miðast við að staðan í þjóðfélaginu verði þannig að heilbrigðisyfirvöld heimili að leikir verði spilaðir. Gert er ráð fyrir að öll mót sumarsins á vegum KSÍ, nema fyrirhuguðu keppni varaliða í meistaraflokki karla. Mjólkurbikar karla og kvenna hefst 5.…Lesa meira

true

Blásið í ærslabelginn

Til að halda upp á að búið er að létta á samkomubanni var blásið lofti í ærslabelginn í Grundarfirði. Það kunnu þessir sannarlega vel að meta eins og meðfylgjandi mynd Tómasar Freys Kristjánssonar fréttaritara ber með sér.Lesa meira

true

Landsmenn eru jákvæðir gagnvart lífrænni ræktun

Átaksverkefnið „Lífrænt Ísland“ fór formlega af stað í síðustu viku. Markmiðið er að efla og kynna lífræna framleiðslu á Íslandi. Um er að ræða samstarfsverkefni VOR, félags framleiðenda í lífrænum búskap, Bændasamtaka Íslands og atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins. VOR fer með framkvæmd verkefnisins og er Berglind Häsler verkefnastjóri. „Við hefjum átakið með því að kynna niðurstöður…Lesa meira

true

Frambjóðendur skila meðmælendalistum 19. maí

Dómsmálaráðuneytið hefur birt tilkynningu um hvenær frambjóðendur til kjörs Forseta Íslands þurfa að skila inn meðmælendalistum vegna kosninganna 27. júní næskomandi. Yfirkjörsókn í Norðvesturkjördæmi mun koma saman og taka á móti meðmælendalista væntanlegra frambjóðenda þriðjudaginn 19. maí klukkan 13-14 á Borgarbraut 61 í Borgarnesi, á lögmannsstofu Inga Tryggvasonar formanns yfirkjörstjórnar. Þrír hafa tilkynnt um væntanleg…Lesa meira

true

Tækniborg flytur yfir Borgarbrautina

Verslunin Tækniborg í Borgarnesi mun flytja yfir Borgarbrautina í Hyrnutorg, þar sem Upplýsingamiðstöð Markaðsstofu Vesturlands var síðast til húsa. Ómar Örn Ragnarsson, eigandi Tækniborgar tók við lyklum að nýja húsnæðinu fyrir helgi og væntir hann þess að verslunin verði opnuð á nýjum stað síðar í þessu mánuði. „Ég hef ekki ákveðið dagsetningu en það þarf…Lesa meira

true

Salti og áburði var landað í Stykkishólmi

Um 1500 tonnum af salti var landað í Stykkishólmshöfn föstudaginn 24. apríl síðastliðinn. Það voru BB og synir sem önnuðust löndunina. Að sögn Sævars Benediktssonar hjá BB og sonum fer megnið af saltinu til Þórsness en hluti annað. Um er að ræða saltbirgðir út þetta ár og fyrir upphaf þess næsta. Þá var um 900…Lesa meira

true

Breski matvælarisinn Morrisons kaupir tæknibúnað frá Skaganum 3X

Morrisons er ein stærsta verslana- og matvælavinnslukeðja Bretlands með yfir 550 verslanir. Hún er jaframt leiðandi framleiðandi á fiski og öðru sjávarfangi til breskra neytenda. Morrisons hefur nú fest kaup á kælitæknibúnaði frá Skaganum 3X og verður fyrsta fyrirtækið til að nýta tæknina á Bretlandsmarkaði. Auk kælibúnaðar kaupir Morrison uppþíðingarkerfi fyrir frystar afurðir og lausn…Lesa meira