Fréttir

true

Rafmagnslaust verður í Hvalfjarðarsveit um tíma í dag

Rafmagnslaust verður í Hvalfirði í dag frá klukkan 10-16 og í Svínadal milli kl. 15 og 16, en á þessum tímum verður unnið að tenginu á háspennustrengjum. Rafmagn gæti komist á í stutta stund undir lok vinnunnar vegna prófunar en allar nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt Rarik á Vesturlandi í síma 528-9390.Lesa meira

true

Stefnt að fjölbýlishúsi í stað hótelbyggingar við Kirkjubraut 39

Hjá skipulags- og umhverfisráði Akraneskaupstaðar er nú til meðferðar umsókn Uppbyggingar ehf. um að byggja fjölbýlishús á lóðinni Kirkjubraut 39, en lóðin er meðal annars kennd við rekstur Fólksbílastöðvarinnar sem þar hafði eitt sinn starfsemi. Uppbygging ehf. hafði áður keypt lóðina og fengið samþykkta umsókn um að byggja þar hótel, en frá því hefur nú…Lesa meira

true

Ýmsar framkvæmdir við sundlaugar og íþróttamannvirki í Borgarbyggð

Sundlaugar og önnur íþróttamannvirki í Borgarbyggð hafa verið lokuð frá 23. mars síðastliðinn og hafa íbúar í sveitarfélaginu þurft að sætta sig við að komast ekki í almenningslaugar og almennt fært alla hreyfingu undir beran himinn. Ingunn Jóhannesdóttir, forstöðumaður íþróttamannvirkja hjá sveitarfélaginu, segir þó að búið sé að nýta tímann vel í lokununum til ýmissa…Lesa meira

true

Viðspyrna og varnir Stykkishólmsbæjar vegna Covid-19

Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar samþykkti nýverið aðgerðir til að spyrna við efnahagslegum afleiðingum Covid-19 faraldursins. Aðgerðirnar koma til viðbótar aðgerðum sem þegar hefur verið gripið til, en sumar höfðu komið til framkvæmda þegar við upphaf faraldursins. Aðgerðunum er skipt í þrjá liði; varnir í þágu heimila og fyrirtækja, efling samfélagsins og sterkari innviðir. Varnir í þágu heimila…Lesa meira

true

Mögulega fyrsti hjólagarpur sumarsins

Hann Lúcas kemur frá Litháen. Þessi ungi maður er mögulega fyrsti erlendi hjólagarpur sumarsins. Fréttaritari Skessuhorns hitti hann nýlega fyrir utan Bónus í Borgarnesi þar sem hann var að nesta sig upp fyrir hjólaferð. Leið hans lá þá áleiðis vestur á firði.Lesa meira

true

Lionsmenn færðu HVE á Akranesi góðar gjafir

Í gærkvöldi héldu félagar í Lionsklúbbi Akraness fund í húsakynnum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi. Búið er nú að opna sjúkrahúsið fyrir gestakomum, en fundir klúbbsins hafa legið niðri síðan í mars þegar kórónaveiran kom upp. Á fundinn mættu jafnframt forstjóri HVE og deildarstjórar á sjúkrahúsinu en klúbburinn færði HVE fjögur ný tæki að gjöf. Um…Lesa meira

true

Mikil óvissa í ferðaþjónustunni

Það eru miklar breytingar hjá Markaðsstofu Vesturlands þessa daganna. Eins og Skessuhorn hefur áður greint frá var Upplýsingamiðstöð Markaðsstofu Vesturlands í Hyrnutorgi í Borgarnesi lokað 1. apríl síðastliðinn. „Það hefur verið stefna stjórnvalda að auka áherslu á rafræna kynningu og markaðssetningu og var því ekki vilji fyrir að peningarnir sem kæmu inn í Markaðsstofuna væru…Lesa meira

true

Bæjarstjórn Stykkishólms mótmælir kröftuglega stöðvun grásleppuveiða

„Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar mótmælir kröftuglega ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að stöðva fyrirvaralaust grásleppuveiðar við landið. Stykkishólmshöfn hefur verið einn helsti löndunarstaður grásleppu á landinu um árabil. Af 5.000 tonna heildarafla í grásleppu á síðasta ári var 30% hans veiddur við innanverðan Breiðafjörð. Í Stykkishólmi var 22% af öllum grásleppuafla landsins landað. Hlutfall grásleppu í lönduðum…Lesa meira

true

Bæjarráð krefst þess að ráðherra endurskoði ákvörðun sína

Á fundi bæjarráðs Akraness í gær var fjallað um reglugerð atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis sem útgefin var 30. apríl síðastliðinn um bann við grásleppuveiðum frá og með miðnætti aðfararnótt sunnudagsins 3. maí. Bæjarráð bókaði eftirfarandi: „„Bæjarráð Akraness tekur undir með félagsmönnum í smábátafélaginu Sæljóni á Akranesi og mótmælir fordæmalausri ákvörðum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að stöðva…Lesa meira

true

Boða til fjarfundar með fulltrúum fyrirtækja í Borgarbyggð

Mánudaginn 11. maí næstkomandi kl. 09:00 er fulltrúum fyrirtækja í Borgarbyggð boðið að taka þátt í samtali við atvinnu-, markaðs- og menningarmálanefnd sveitarfélagsins, sveitarstjóra og byggðarráði á fjarfundi. „Fundurinn er hugsaður til upplýsingaöflunar fyrir sveitarfélagið vegna Covid-19. Fulltrúar sem vilja taka þátt í fundinum eru beðnir um að setja sig í samband við verkefnastjóra atvinnu-,…Lesa meira