Fréttir

true

Bæjarstjórn Stykkishólms mótmælir kröftuglega stöðvun grásleppuveiða

„Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar mótmælir kröftuglega ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að stöðva fyrirvaralaust grásleppuveiðar við landið. Stykkishólmshöfn hefur verið einn helsti löndunarstaður grásleppu á landinu um árabil. Af 5.000 tonna heildarafla í grásleppu á síðasta ári var 30% hans veiddur við innanverðan Breiðafjörð. Í Stykkishólmi var 22% af öllum grásleppuafla landsins landað. Hlutfall grásleppu í lönduðum…Lesa meira

true

Bæjarráð krefst þess að ráðherra endurskoði ákvörðun sína

Á fundi bæjarráðs Akraness í gær var fjallað um reglugerð atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis sem útgefin var 30. apríl síðastliðinn um bann við grásleppuveiðum frá og með miðnætti aðfararnótt sunnudagsins 3. maí. Bæjarráð bókaði eftirfarandi: „„Bæjarráð Akraness tekur undir með félagsmönnum í smábátafélaginu Sæljóni á Akranesi og mótmælir fordæmalausri ákvörðum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að stöðva…Lesa meira

true

Boða til fjarfundar með fulltrúum fyrirtækja í Borgarbyggð

Mánudaginn 11. maí næstkomandi kl. 09:00 er fulltrúum fyrirtækja í Borgarbyggð boðið að taka þátt í samtali við atvinnu-, markaðs- og menningarmálanefnd sveitarfélagsins, sveitarstjóra og byggðarráði á fjarfundi. „Fundurinn er hugsaður til upplýsingaöflunar fyrir sveitarfélagið vegna Covid-19. Fulltrúar sem vilja taka þátt í fundinum eru beðnir um að setja sig í samband við verkefnastjóra atvinnu-,…Lesa meira

true

Margir vilja stýra Faxaflóahöfnum

Mikil spurn er eftir starfi hafnarstjóra Faxaflóahafna því alls sækja 26 um að taka við af Gísla Gíslasyni hafnarstjóra sem hefur eins og kunnugt er ákveðið að láta af embætti síðsumars. Á vef Faxaflóahafna segir að hæfnisnefnd muni nú í samræmi við fyrirliggjandi ráðningarferli annast viðtöl og annan undirbúning tillögugerðar til stjórnar Faxaflóahafna sf. um…Lesa meira

true

Ákvörðun ráðherra er reiðarslag fyrir Sæfrost í Búðardal

Sæfrost ehf er fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækið í Búðardal. Starfsemi þess hefur undanfarin ár fyrst og fremst snúist um grásleppufrystingu og söltun hrogna. Nú hefur Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra eins og kunnugt er látið stöðva allar grásleppuveiðar við landið vegna mikillar veiði norðan við land. Grásleppusjómenn við vestanvert landið sitja eftir með sárt ennið og telja…Lesa meira

true

Borgarverk bauð lægst í endurbyggingu Faxabrautar á Akranesi

Fjögur tilboð bárust í endurbyggingu Faxabrautar á Akranesi en tilboð voru opnuð í gær. Í verkinu felst hækkun götunnar, lagnavinna og frágangur ásamt stækkun grjótvarnargarðs. Verkefnið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Akraneskaupstaðar og veitufyrirtækja. Áætlaður kostnaður við verkið var 530 milljónir króna. Lægsta tilboð átti Borgarverk ehf. í Borgarnesi em bauð 466 milljónir, eða 87,9% af áætluðum…Lesa meira

true

„Fótboltinn er lífsstíll, hvort sem maður er leikmaður eða þjálfari“

Dean Martin þarf vart að kynna fyrir íslenskum knattspyrnuáhugamönnum. Hann er fæddur og uppalinn í suðurhluta London, spölkorn frá hinni víðfrægu Tower Bridge. Foreldrar hans ráku krá þar í hverfinu og fjölskyldan bjó á efri hæðinni. Hann æfði fótbolta í akademíu West Ham en átti eftir að fara smá krókaleið að atvinnumennskunni. Hann lék í…Lesa meira

true

„Okkar framtíð björt svo lengi sem bæði stjóriðjufyrirtækin verða hér“

Síðastliðinn laugardag voru rétt 20 ár síðan fyrirtækið Klafi ehf. hóf starfsemi á Grundartanga. Stofnendur og eigendur Klafa eru stóriðjufyrirtækin Norðurál og Elkem Ísland. Upphaflegt hlutverk fyrirtækisins var að sinna öllum flutningum fyrir fyrirtækin á Grundartanga, þar með talið uppskipun og útskipun, auk gámaflutninga og öðrum tilfallandi verkefnum. Fyrir nokkrum árum var ákveðið að sérhæfa…Lesa meira

true

HÍ og Hafró mennta fiskifræðinga framtíðarinnar

Háskóli Íslands og Hafrannsóknastofnun hafa gert með sér samkomulag um samvinnu um nýja námsleið í sjávar- og vatnalíffræði með áherslu á fiskifræði sem verður í boði frá og með næsta hausti við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskólans. Stofnanirnar hafa um árabil átt gott samstarf bæði á sviði kennslu og rannsókna. Þannig hafa starfsmenn Hafrannsóknastofnunar m.a. sinnt…Lesa meira

true

Lægsta boð 55 milljónum undir áætlun

Lægsta boð í byggingu Þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi var tæpum 55 milljónum undir kostnaðaráætlun. Sex tilboð bárust og voru þau opnuð í gær, þriðjudaginn 5. maí. Lægsta boðið átti Húsheild ehf., sem hljóðaði upp á tæplega 421 milljón króna. Er það 55 milljónum undir kostnaðaráætlun sem fyrr segir, en hún gerði ráð fyrir kostnaði upp á…Lesa meira