Fréttir

true

Vélhjólaslys við Akranes

Maður féll af hjóli og slasaðist í mótocrossbrautinni í Garðaflóa við Akranes í gærkvöldi. Björgunarfélag Akraness var kallað út til aðstoðar við að flytja hinn slasaða í sjúkrabíl. Þaðan var hann fluttur á sjúkrahús í Reykjavík til aðhlynningar. Að sögn Lögreglunnar á Vesturlandi liggja ekki fyrir upplýsingar um líðan mannsins.Lesa meira

true

Landssýning kynbótahrossa á Hellu í lok júní

Félag hrossabænda hefur ákveðið að blása til landssýningar á kynbótahrossum laugardaginn 27. júní á Rangárbökkum við Hellu. Þar verða tíu efstu hross landsins, eftir dóma vorsins, ítarlega kynnt og verðlaunuð, í öllum flokkum hryssa og stóðhesta. Einnig verða afkvæmasýningar en þeir stóðhestar sem eiga rétt á fyrstu- og heiðursverðlaunum fyrir afkvæmi geta komið fram á…Lesa meira

true

Engar hvalveiðar í sumar

Hvalveiðar verða ekki stundaðar í sumar samkvæmt frétt í Morgunblaðinu í dag. Þar er haft eftir Kristjáni Loftssyni forstjóra Hvals hf. að helsta ástæða þeirrar ákvörðunar byggi á því að erfitt sé að keppa við niðurgreiddar hvalveiðar Japana, þar sem markaður fyrir hvalaafurðir er. Þarlend stjórnvöld hafa sagt sig úr Alþjóða hvalveiðiráðinu og stunda niðurgreiddar…Lesa meira

true

Strandveiðar verða með svipuðu sniði en nú má veiða á almennum frídögum

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um strandveiðar árið 2020, en þær hefjast eins og kunnugt er í byrjun maí. Reglugerðin er efnislega samhljóða reglugerð um strandveiðar síðasta árs að öðru leyti en því að lagaheimild ráðherra til að banna strandveiðar á almennum frídögum er ekki nýtt í þessari reglugerð. Því verður…Lesa meira

true

Sjúkraþjálfun Akraness opnuð á næstu vikum

Sjúkraþjálfun Akraness verður opnuð á næstu vikum. Það eru þau Gunnar Smári Jónbjörnsson, Einar Harðarson, Anna Sólveig Smáradóttir og Helga Sjöfn Jóhannesdóttir sem hafa sameinað krafta sína og munu opna Sjúkraþjálfun Akraness við Suðurgötu 126. „Við erum þar með efri hæðina og salinn á neðri hæð. Þetta eru yfir 300 fermetrar og það verður aðstaða…Lesa meira

true

Átta hundruð milljónum varið til að efla sumarnám

Stjórnvöld hafa ákveðið að veita 800 milljónum króna til framhalds- og háskóla svo unnt sé að bjóða námsmönnum upp á sumarnám á komandi sumri. Sporna á gegn atvinnuleysi meðal ungs fólks og efla menntun. Gert er ráð fyrir 500 milljónum króna í sumarnám á háskólastigi og 300 milljónum króna í sumarnám á framhaldsskólastigi. Á framhaldsskólastigi…Lesa meira

true

Matvælasjóður kemur í stað Framleiðnisjóðs og AVS

Til að efla nýsköpun og þróun í innlendri matvælaframleiðslu verður settur á fót svokallaður Matvælasjóður og verður 500 milljónum króna úr ríkissjóði varið til stofnunar hans á þessu ári. Stofnun sjóðsins er hluti af öðrum áfanga aðgerða ríkisstjórnarinnar til að bregðast við áhrifum COVID-19. Matvælasjóður mun hafa það hlutverk að styrkja þróun og nýsköpun við…Lesa meira

true

Umfangsmikil leit að tíu ára dreng

Um nónbil í dag voru björgunarsveitir á Vesturlandi og suðvesturhorni landsins kallaðar út til leitar að tíu ára dreng. Hann hafði orðið viðskila við foreldra sína við Hreðavatn í Norðurárdal. Þegar mest var voru um tvö hundruð manns við leit. Tæpum þremur tímum síðar fannst drengurinn heill á húfi við Grábrók eftir ábendingar frá fólki…Lesa meira

true

Engin ný smit á Vesturlandi

Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi greindust engin ný smit Covid-19 í landshlutanum síðasta sólarhring. Alls hefur 41 greinst með veiruna frá upphafi á Vesturlandi og eru sex þeirra í einangrun; tveir í Stykkishólmi, tveir í Borgarnesi og tveir á Akranesi. 13 eru í sóttkví.Lesa meira

true

Spyrja hvernig sé að reka fyrirtæki í Borgarbyggð

Atvinnu-, markaðs- og menningarmálanefnd Borgarbyggðar vinnur nú að gerð markaðsstefnumótunar í samstarfi við markaðsstofuna Manhattan. Verkefnið felst í að búa til heildstæða markaðsstefnumótun og aðgerðaáætlun fyrir Borgarbyggð sem spennandi stað til að búa á, starfa, reka fyrirtæki og heimsækja. „Þessi könnun er sérstaklega fyrir þá aðila sem að reka fyrirtæki í Borgarbyggð. Lögð er áhersla…Lesa meira