
Akranes fékk löggildingu sem verslunarstaður árið 1864 og var hið opinbera heiti hans „Verslunarstaður við Lambhúsasund.“ Það er þó ekki fyrr en 1872 sem fastakaupmaður tekur sér hér bólfestu, en það var Þorsteinn Guðmundsson. Í kjölfarið koma Snæbjörn Þorvaldsson, Böðvar Þorvaldsson, Pétur Hoffmann og Þórður Guðmundsson á Háteigi. Þeir staðsettu sig allir hér við Lambhúsasundið.…Lesa meira








