Fréttir

true

Samið um að Guðrún Ósk þjálfi Skallagrím áfram

Bikarmeistarar Skallagríms í körfubolta hafa gengið frá samningi við Guðrúnu Ósk Ámundadóttur um að stýra kvennaliðinu áfram á næstu leiktíð. Karfan.is greindi frá. Guðrún Ósk er uppalin í Borgarnesi og tók við liðinu fyrir ári síðan og náði frábærum árangri á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari. Skallagrímur lyfti eins og kunnugt er fyrsta bikarmeistaratitli félagsins…Lesa meira

true

Óskað þátttöku í könnun um uppbyggingu ferðaleiðar um Hvalfjörð og Akranes

Vinna gengur vel í upphafi hönnunar ferðaleiðar um Hvalfjörð og Akranes. „Nú köllum við eftir þátttöku íbúa, fyrirtækja og velunnara svæðisins í fyrstu spurningakönnun um svæðið sem ferðaleiðin tengist. Tilgangur þessarar fyrstu könnunar er að fanga anda ferðaleiðarinnar og finna sérstöðu hvers svæðis. Á þeim gögnum sem safnast í könnuninni byggjum við ímyndavinnu og þemu…Lesa meira

true

Engin ný smit síðasta sólarhringinn

Lögreglan á Vesturlandi var nú rétt í þessu að tilkynna um stöðu smita af Covid-19 í landshlutanum. Staðan er óbreytt frá í gær og fyrradag, en alls hafa 40 einstaklingar verið greindir með smit. Af þeim eru 11 ennþá í einangrun. 36 manns eru í sóttkví á Vesturlandi. Enn hefur ekkert smit verið greint á…Lesa meira

true

Gunnlaugur stefnir Borgarbyggð og krefst 60 milljóna króna

Gunnlaugur A Júlíusson, fyrrverandi sveitarstjóri Borgarbyggðar, krefur sveitarfélagið um 60 milljónir króna vegna uppsagnar hans úr starfi í nóvember síðastliðnum. Stefnan var lögð fram í Héraðsdómi Vesturlands fyrr í þessum mánuði og greindi fréttavefur Ríkisútvarpsins frá innihaldi hennar. Gunnlaugi var sagt upp störfum í nóvember síðastliðnum og telur að á sér hafi verið brotið. Í…Lesa meira

true

Stálu bílum í Reykhólasveit og grunuð um margháttuð brot

Seint í gærkvöldi handtóku lögreglumenn frá Vesturlandi og Vestfjörðum þrennt; tvo karlmenn og eina konu, á Vestfjarðavegi við Sælingsdal í Dölum. Fólkið var á tveimur bifreiðum, sem báðum hafði verið stolið fyrr um kvöldið í Reykhólasveit. Skömmu áður en lögreglan kom á vettvang hafði ökumaður velt annarri bifreiðinni en þó ekki hlotið alvarleg meiðsli. Ökumenn…Lesa meira

true

Söngurinn léttir vissulega lundina

Í Facebook hópnum „Syngjum veiruna burt – öllum frjálst að vera með“ eru meðlimir orðnir tæplega 20 þúsund talsins. Þar inni hefur fólk deilt myndböndum af sér syngja ýmis lög til að vekja gleði og samhug á meðan faraldur kórónuveirunnar stendur yfir. „Það veit það hver heilvita maður að við náum ekki að losa okkur…Lesa meira

true

Olíunotkun í sjávarútvegi aldrei minni

Olíunotkun í sjávarútvegi var rétt rúm 133 þúsund tonn á árinu 2019. Það er minnsta notkun í greininni frá upphafi mælinga, sem ná aftur til ársins 1982 og þá fyrir daga kvótakerfisins. Olíunotkun fiskiskipa nam 130 þúsund tonnum á árinu og dróst saman um rúm 4% frá fyrra ári. Samdrátturinn var öllu meiri í olíunotkun…Lesa meira

true

Spólaði upp æfingasvæðið

Ökumaður varð uppvís að því á miðvikudaginn í síðustu viku að spóla í hringi á bifreið sinni á æfingasvæði knattspyrnufélags ÍA á Akranesi. Að sögn lögreglu er búið að finna út úr því hver þarna var á ferðinni. Myndir náðust af athæfinu og er málið til rannsóknar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hafði ökumaðurinn fyrr sama…Lesa meira

true

Fylgi við ríkisstjórnina dalar og mælist nú 51,1%

MMR birti í dag nýja könnun á fylgi stjórnmálaflokka hér á landi. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 22,7%, sem er tæpu prósentustigi minna en í könnun MMR sem gerð var í byrjun apríl en á pari við fylgi flokksins í febrúar. Samfylkingin mældist næst með 13,1% fylgi, um prósentustigs lækkun frá síðustu mælingu. Fylgi Vinstri grænna…Lesa meira

true

Fermeters gat uppgötvaðist á botni sjókvíar í Patreksfirði

Matvælastofnun barst tilkynning frá Arnarlaxi (Fjarðalaxi) miðvikudaginn 15. apríl um gat á nótarpoka einnar sjókvíar Arnarlax við Eyri í Patreksfirði. Gatið uppgötvaðist um kl. 11:00 miðvikudaginn 15. apríl við reglubundið neðjansjávareftirlit. Samkvæmt upplýsingum Arnarlax var gatið á botni nótarpokans eða á 35m dýpi og var það um 100×100 cm. Í kvínni voru um 100.000 laxar…Lesa meira