Fréttir

true

Rósa Njálsdóttir opnar sýningu í Grundarfirði

Föstudaginn 22. júlí opnar Rósa Njálsdóttir málverkasýningu í Sögumiðstöðinni Grundarfirði. Verkin eru öll unnin með olíu á striga og efnistökin eru fólkið hennar, fjöllin og fjörðurinn.  Verk hennar eru unnin eftir gömlum svart-hvítum ljósmyndum og einnig litríkar landslagsmyndir sem sýna fjöllin fyrir vestan og sólsetrið í sveitinni hennar. Sýningin verður opin til 1. ágúst. Rósa…Lesa meira

true

Nú styttist í Unglingalandsmót UMFÍ í Borgarnesi

„Undirbúningur hefur gengið mjög vel,“ segir Eva Hlín Alfreðsdóttir verkefnastjóri unglingalandsmóts UMFÍ sem haldið verður í Borgarnesi um verslunarmannahelgina. „Það er margra manna átak að halda svona mót og það hefur margt gott fólk komið að undirbúningum,“ segir Eva Hlín. Mótið er ætlað krökkum á aldrinum 11-18 ára og þurfa keppendur ekki að mæta sem…Lesa meira

true

Minning – Agnar Ólafsson framleiddi nagla í meira en hálfa öld

Í dag fór fram frá Borgarneskirkju útför Agnars Ólafssonar fyrrum vélamanns í saumdeild Límtré Vírnets. Agnar var fæddur í upphafi lýðveldisársins og bjó alla tíð í Borgarnesi. Starfsferill hans var óvenjulegur eins og kom fram í viðtali við hann, sem Heiðar Lind Hansson blaðamaður skráði, og birt var í Skessuhorni haustið 2013. Í janúar það ár hafði Agnar átt 50…Lesa meira

true

Ólöglegur á ýmsa vegu

Ökumaður sem aldrei hefur öðlast réttindi til að aka bíl, talinn vera undir áhrifum áfengis og verulega undir áhrifum margs konar lyfja, stal í vikunni bíl á bílasölu í Reykjavík og ók upp í Borgarfjörð. Þar reyndi hann að stela olíu á sveitabæ. Að sögn lögreglu var maðurinn mældur á miklum hraða við eftirför og…Lesa meira

true

Sveitalögga slædd upp af botni Faxaflóa

Í byrjun júlímánaðar var humarskipið Fróði á veiðum 20 sjómílum suðaustur af Snæfellsjökli þegar skipverjar urðu varir við kvikmyndafilmur í trollinu. Filmunum var komið til Kvikmyndasafns Íslands þar sem menn töldu í fyrstu að um væri að ræða kvikmynd frá stríðsárunum þegar mikil skipaumferð var um Faxaflóa. Töldu menn jafnvel að filmurnar gætu verið úr…Lesa meira

true

Ferðamenn voru 37% fleiri í júní en fyrir ári

Í júní síðastliðnum nam erlend greiðslukortavelta tæpum 26 milljörðum króna samanborið við rúmlega 18 milljarða í sama mánuði 2015. Um er að ræða rúmlega 40% aukningu á milli ára. Kortavelta erlendra ferðamanna í júní er sú mesta í einum mánuði frá upphafi en fyrra met var í júlí í fyrra, tæpir 24 milljarðar. Það sem…Lesa meira

true

Darrell Flake snýr aftur í Borgarnes

Reynsluboltinn Darrel Flake hefur skrifað undir eins árs samning við Skallagrímsmenn og mun hann því leika með liðinu í Dominos deildinni næsta vetur. Flake, sem er 36 ára miðherji, er Borgnesingum að góðu kunnugur. Hann lék fyrst með liðinu á árunum 2006-2008 og aftur 2010-2012. Frá 2014 hefur hann leikið með öflugu liði Tindastólsmanna sem…Lesa meira

true

Keppt var á Íslandsmeistaramóti í motocross á Akrabraut

Síðastliðinn laugardag fór fram fjórða umferð í Íslandsmeistaramótinu í motocross á Akrabraut við Akrafjall. „Keppnin gekk eins vel og hugsast gat. Veðrið var frábært, logn og steikjandi hiti, brautin og aðstæðurnar til fyrirmyndar og keppnin gekk slysalaust fyrir sig. Það var mikil ánægja meðal keppenda með mótið,“ segir Jóhann Pétur Hilmarsson formaður Vélhjólaíþróttafélags Akraness í…Lesa meira

true

Jóhannes Karl tekur við HK

Jóhannes Karl Guðjónsson hefur tekið við þjálfarastarfi HK í fyrstu deild karla í knattspyrnu. Hann hefur starfað sem spilandi aðstoðarþjálfari það sem af er sumri en nú tekur hann við starfi aðalþjálfara af öðrum Skagamanni, Reyni Leóssyni, sem hefur stýrt liðinu. Reynir sagði upp störfum en hann tók við af Þorvaldi Örlygssyni síðasta vetur. HK…Lesa meira

true

Rallað verður um Skagafjörð um helgina

Rallýáhugafólk leggur land undir fót um næstu helgi en þriðja umferð Íslandsmótsins í rallý fer fram í Skagafirði 22. og 23. júlí næstkomandi. Það er Bílaklúbbur Skagafjarðar sem stendur fyrir keppninni en hún er með svipuðum hætti og hefur verið undanfarin ár. Góð þátttaka er í keppnina en hátt í tuttugu áhafnir eru skráðar til…Lesa meira