Fréttir

true

Ólöglegur á ýmsa vegu

Ökumaður sem aldrei hefur öðlast réttindi til að aka bíl, talinn vera undir áhrifum áfengis og verulega undir áhrifum margs konar lyfja, stal í vikunni bíl á bílasölu í Reykjavík og ók upp í Borgarfjörð. Þar reyndi hann að stela olíu á sveitabæ. Að sögn lögreglu var maðurinn mældur á miklum hraða við eftirför og…Lesa meira

true

Sveitalögga slædd upp af botni Faxaflóa

Í byrjun júlímánaðar var humarskipið Fróði á veiðum 20 sjómílum suðaustur af Snæfellsjökli þegar skipverjar urðu varir við kvikmyndafilmur í trollinu. Filmunum var komið til Kvikmyndasafns Íslands þar sem menn töldu í fyrstu að um væri að ræða kvikmynd frá stríðsárunum þegar mikil skipaumferð var um Faxaflóa. Töldu menn jafnvel að filmurnar gætu verið úr…Lesa meira

true

Ferðamenn voru 37% fleiri í júní en fyrir ári

Í júní síðastliðnum nam erlend greiðslukortavelta tæpum 26 milljörðum króna samanborið við rúmlega 18 milljarða í sama mánuði 2015. Um er að ræða rúmlega 40% aukningu á milli ára. Kortavelta erlendra ferðamanna í júní er sú mesta í einum mánuði frá upphafi en fyrra met var í júlí í fyrra, tæpir 24 milljarðar. Það sem…Lesa meira

true

Darrell Flake snýr aftur í Borgarnes

Reynsluboltinn Darrel Flake hefur skrifað undir eins árs samning við Skallagrímsmenn og mun hann því leika með liðinu í Dominos deildinni næsta vetur. Flake, sem er 36 ára miðherji, er Borgnesingum að góðu kunnugur. Hann lék fyrst með liðinu á árunum 2006-2008 og aftur 2010-2012. Frá 2014 hefur hann leikið með öflugu liði Tindastólsmanna sem…Lesa meira

true

Keppt var á Íslandsmeistaramóti í motocross á Akrabraut

Síðastliðinn laugardag fór fram fjórða umferð í Íslandsmeistaramótinu í motocross á Akrabraut við Akrafjall. „Keppnin gekk eins vel og hugsast gat. Veðrið var frábært, logn og steikjandi hiti, brautin og aðstæðurnar til fyrirmyndar og keppnin gekk slysalaust fyrir sig. Það var mikil ánægja meðal keppenda með mótið,“ segir Jóhann Pétur Hilmarsson formaður Vélhjólaíþróttafélags Akraness í…Lesa meira

true

Jóhannes Karl tekur við HK

Jóhannes Karl Guðjónsson hefur tekið við þjálfarastarfi HK í fyrstu deild karla í knattspyrnu. Hann hefur starfað sem spilandi aðstoðarþjálfari það sem af er sumri en nú tekur hann við starfi aðalþjálfara af öðrum Skagamanni, Reyni Leóssyni, sem hefur stýrt liðinu. Reynir sagði upp störfum en hann tók við af Þorvaldi Örlygssyni síðasta vetur. HK…Lesa meira

true

Rallað verður um Skagafjörð um helgina

Rallýáhugafólk leggur land undir fót um næstu helgi en þriðja umferð Íslandsmótsins í rallý fer fram í Skagafirði 22. og 23. júlí næstkomandi. Það er Bílaklúbbur Skagafjarðar sem stendur fyrir keppninni en hún er með svipuðum hætti og hefur verið undanfarin ár. Góð þátttaka er í keppnina en hátt í tuttugu áhafnir eru skráðar til…Lesa meira

true

Formleg stofnun SAGA jarðvangs í uppsveitum Borgarfjarðar

Um síðustu áramót sendi undirbúningsfélag um stofnun SAGA jarðvangs inn formlega umsókn til UNESCO Geoparks um aðild jarðvangsins að þessum alþjóðlega viðurkenndu samtökum. Umsókninni var vel tekið og er von á úttektaraðilum á vegum UNESCO til landsins í ágúst, en þeir munu leggja endanlegt mat á hæfi svæðisins til að fá aðgang að samtökunum. Til…Lesa meira

true

Skjót viðbrögð þegar eldur kom upp í hjólhýsi

Eldur kom upp í hjólhýsi sem nýverið var búið að leggja við bensíndælur verslunar Baulunnar í Stafholtstungum um klukkan 14 í gær. Slökkvilið Borgarbyggðar var kvatt á staðinn og gekk greiðlega að slökkva. Að sögn Bjarna Kr Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra skiptu þó mestu skjót viðbrögð Kristbergs Jónssonar kaupmanns í Baulunni. „Hann Kibbi brást hárrétt við. Hann…Lesa meira

true

Glitbrúsi nemur land

„Þessi fugl heitir glitbrúsi og var að sjást í fyrsta sinn hér á landi fyrir um viku síðan eða á sama tíma og ég hóf sumarfríið mitt,“ segir Sigurjón Einarsson náttúrulífsljósmyndari á Hvanneyri. „Það var því bara um einn stað að velja hvar ég byrjaði mitt frí,“ bætir hann við. Glitbrúsi er af brúsaætt og…Lesa meira