Fréttir

true

Tromlan bilaði í haugasjó

Áhöfnin á dragnótarbátnum Guðmundi Jenssyni SH var í óða önn nú í morgunsárið að reyna að ná dragnótinni af tromlunni þar sem skipið lá við bryggju í Ólafsvík. Tromlan hafði bilað á miðunum í gær þegar verið var að taka nótina inn. Illugi Jónasson skipstjóri segir að tromlan hafi bilað þegar þeir voru að draga…Lesa meira

true

Ekki einhugur innan forystu ASÍ um aðgerðir

Innan forystu Alþýðusambands Íslands er ekki einhugur um til hvaða aðgerða á að grípa vegna þeirrar fordæmalausu stöðu sem upp er komin á vinnumarkaði vegna Covid-19 veirunnar. Forysta ASÍ hefur hafnað því að fresta hækkun launa um þessi mánaðamót, þrátt fyrir erfiðleika fyrirtækja í landinu. Þá hafa sumir verkalýðsforyngjar, þeirra á meðal Vilhjálmur Birgisson formaður…Lesa meira

true

Tvö nýsmit í landshlutanum frá í gær

Nú eru 30 smitaðir af Covid-19 veirunni á Vesturlandi, tveimur fleiri en búið var að greina í gær. Allir eru þeir í einangrun. Ný smit hafa ekki verið greind frá í gær annarsstaðar en á svæði heilsugæslunnar í Borgarnesi þar sem 19 eru nú sýktir. Á Akranesi eru sjö, í Stykkishólmi 3 og einn í…Lesa meira

true

Tími til að lesa

Í dag hleypti mennta- og menningarmálaráðuneytið af stokkunum lestrarverkefni fyrir þjóðina, þar sem börn og fullorðnir eru hvött til að nýta til lesturs þann tíma sem gefst við núverandi aðstæður. Lestur er sérstaklega mikilvægur fyrir börn, enda ræðst námsárangur barna að stórum hluta af lesskilningi sem eykst með auknum lestri. Lestur veitir fullorðnum örvandi hvíld…Lesa meira

true

Þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki sem starfa samkvæmt undanþágu frá samkomubanni

Hér að neðan í þessari frétt er listi yfir fyrirtæki sem fengið hafa undanþágu frá samkomubanni svo unnt sé að halda starfsemi þeirra órofinni. Heilbrigðisráðherra veitti undanþáguna að undangengnu samráði við sóttvarnalækni, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Matvælastofnun. Breytingar kunna að verða á listanum sem verður þá uppfærður. Margar umsóknir hafa borist heilbrigðisráðuneytinu um undanþágur frá takmörkun…Lesa meira

true

Aldamótakarfi veiðist nú í Borgarfirði

Ganga af svonefndum aldamótakarfa virðist hafa farið inn á Borgarfjörð og hefur hennar sömuleiðis orðið vart meðfram ströndinni allt suður á Akranes. Síðdegis á mánudaginn fengu dorgveiðimenn á Borgarnesbryggju nokkra slíka fiska og sömuleiðis stangveiðimenn sem voru að renna fyrir silung á Seleyri. Á meðfylgjandi mynd hampar Þorleifur Geirsson í Borgarnesi vænum karfa sem hann…Lesa meira

true

Rætt við söguáhugamanninn og safnarann Harald

Haraldur Sturlaugsson hefur varið undanförnum 15 árum ævinnar í að safna myndum og heimildum tengdum knattspyrnusögu Akraness. Vitaskuld hefur hann ekki varið tímanum óskiptum til verksins, heldur sinnt þessu áhugamáli í frítíma sínum. Áhuginn á sögunni og ýmsum sögulegum verðmætum hefur fylgt honum alla tíð. Hann kveðst alltaf hafa verið haldinn söfnunaráráttu og -áhuga. „Hér…Lesa meira

true

Búið er að loka upplýsingamiðstöð Vesturlands

Nú 1. apríl var Upplýsingamiðstöð Vesturlands í Hyrnutorgi í Borgarnesi lokað. Sveitarfélagið Borgarbyggð hefur eins og kunnugt er samið við Ljómalind um að reka upplýsingamiðstöð í Borgarnesi út þetta ár. „Mörg önnur sveitarfélög á Vesturlandi eru líka að reka öflugar upplýsingamiðstöðvar og því þótti ekki ástæða til að Markaðsstofa Vesturlands ræki upplýsingamiðstöð á einum stað…Lesa meira

true

Fjöldi smitaðra á Vesturlandi kominn í 28

Samkvæmt upplýsingum frá aðgerðastjórn Almannavarna á Vesturlandi er fjöldi smitaðra í landshlutanum af Covid-19 nú kominn í 28, hefur fjölgað um fimm frá í gær. Þar af eru flestir greindir smitaðir í umdæmi heilsugæslustöðvarinnar í Borgarnesi, eða 17 manns. Sjö eru smitaðir í umdæmi heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi, þrír í Stykkishólmi og einn í Grundarfirði. Allir…Lesa meira

true

Skerða umtalsvert greiðslur til leikmanna og þjálfara

„Knattspyrnufélag ÍA hefur orðið að bregðast við nýju aðstæðum með áður óþekktum hætti til að vernda starfsemi félagsins. Stjórnin félagsins ákvað, sem fyrsta skref, að beita neyðarúrræðum strax um þessi mánaðamót og skerða launagreiðslur til þjálfara og leikmanna umtalsvert,“ skrifar Geir Þorsteinsson framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA í aðsendri grein hér í Skessuhorni. „Ráðstöfunin er sársaukafull en…Lesa meira