Fréttir

true

Erlend kortavelta nálgast frostmark

Kortavelta erlendra ferðamanna hefur dregist ört saman undanfarna daga og vikur líkt og viðbúið var. Á meðfylgjandi grafi má sjá bráðabirgðatölur fyrir erlenda kortaveltu, dag fyrir dag í mars í hlutfalli við sama dag marsmánaðar í fyrra. Síðastliðinn föstudag nam erlend kortavelta einungis 23% þess sem hún var á sama degi í fyrra. Samkvæmt Rannsóknasetri…Lesa meira

true

Skynsamlegt að fjölga álestrum af rafmagnsmælum

Orka heimilanna hvetur rekstraraðila smærri fyrirtækja, sem greiða rafmagn eftir áætlun og hafa hætt eða dregið verulega úr starfsemi, til að lesa af rafmagnsmælum og skila inn álestri einu sinni í mánuði á meðan þetta ástand varir. „Það eru fordæmalausar tímar og margir atvinnurekendur horfa fram á rekstrarerfiðleika vegna versnandi efnahagsaðstæðna. Margir hafa dregið verulega…Lesa meira

true

Smituðum á Vesturlandi hefur ekki fjölgað frá í gær

Í dag fengust þær upplýsingar frá aðgerðastjórn Almannavarna á Vesturlandi að fimm einstaklingar í landshlutanum eru sýktir af Covid-19 veirunni. Þrír eru í Borgarnesi og tveir í Stykkishólmi. Smitið er talið hafa borist í landshlutann með fólki sem var erlendis. Því var ekki um að ræða svokallað innanlandssmit. Þessir einstaklingar eru nú allir í einangrun,…Lesa meira

true

Lið frá FSN og Hagaskóla sigraði í Forritunarkeppni framhaldsskólanna

Hátt í eitt hundrað keppendur í 36 liðum tóku þátt í Forritunarkeppni framhaldsskólanna sem var haldin í tuttugasta skiptið um liðna helgi. Keppnin var háð á netinu, enda þurfti að gera viðeigandi ráðstafanir sökum Covid-faraldursins. Keppnin tókst, að sögn skipuleggjenda hennar, afar vel þrátt fyrir breytt fyrirkomulag. Í Forritunarkeppninni þurftu keppendur að leysa fjölbreyttar forritunarþrautir,…Lesa meira

true

Fresta námsdvöl búfræðinema

Í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri hefur staðnám legið niðri síðustu daga eins og í öðrum framhalds- og háskólum á landinu. Kennsla hefur því alfarið verið í gegnum netið en skólinn var ágætlega undir það búinn að hafa bóklega kennslu á netinu. Öðru máli gegnir um námsdvölina sem er stór hluti af búfræðinámi við skólann. Í lok…Lesa meira

true

Pósturinn mælir fimmtungs aukningu í innlendri netverslun

Íslandspóstur greinir nú töluverða aukningu á innlendri netverslun, en hún stendur nú í um 20%. “Mörg fyrirtæki eru að beina viðskiptavinum sínum á netið og hefur því eftirspurn eftir heimkeyrslu aukist til muna,“ segir í tilkynningu. Heimkeyrsla er í boði víðsvegar um landið og er án efa góð leið til að lágmarka smithættu. Aðeins einn…Lesa meira

true

Kona látin af völdum Covid-19

Íslensk kona lést á smitsjúkdómadeild Landspítala í gær af völdum Covid-19 sjúkdómsins. Hún var liðlega sjötug að aldri og hafði glímt við langvarandi veikindi, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Landspítala sem birt var í morgun. Er þetta fyrsta dauðsfallið á Landspítala af völdum Covid-19 sjúkdómsinsins, en í síðustu viku lést ástralskur…Lesa meira

true

Allir geta nú notið hljóðleiðsagnar um Reykholt

Til viðbótar frestun á viðburðum sínum og samveru vegna Covid-19 hefur Snorrastofa í Reykholti nú lokað þjónustu sinni við gesti, sem veitt er í Gestastofu. „Frá og með mánudeginum 23. mars sl. er gestastofa stofnunarinnar lokuð ferðamönnum. Þetta er tímabundin ráðstöfun vegna COVID-19. Ekki er unnt að meta nú hve lengi þessi ráðstöfun varir,“ segir…Lesa meira

true

Bankaþjónusta Landsbankans með breyttu sniði

„Vegna herts samkomubanns og til að sporna gegn útbreiðslu Covid-19 geta viðskiptavinir aðeins fengið afgreiðslu í útibúi ef erindið er mjög brýnt og ekki er hægt að leysa úr því með öðrum hætti, þ.e. í sjálfsafgreiðslu eða með samtali við Þjónustuver,“ segir í tilkynningu frá Landsbankanum. „Til að fá afgreiðslu er nauðsynlegt að panta tíma…Lesa meira

true

Spornað við lyfjahamstri með reglugerð

Nokkuð hefur borið á því að undanförnu að einstaklingar hafi keypt tiltekin lausasölulyf í miklum mæli, eða að fólk með fjölnota lyfseðla hafi leyst út margar afgreiðslur samtímis eða með skömmu millibili. Í frétt frá heilbrigðisráðuneytinu segir að mikilvægt sé að fólk hamstri ekki lyf. Slík háttsemi getur valdið tjóni með því að skapa lyfjaskort…Lesa meira