Fréttir

true

Frumsýna Bót og betrun á sunnudaginn

Leikdeild Skallagríms frumsýnir leikritið Bót og betrun eftir Michael Cooney næstkomandi sunnudag, 8. mars, í félagsheimilinu Lyngbrekku. Um er að ræða farsakenndan gamanleik sem fjallar um mann sem missir vinnuna sína. Til að afla sér peninga byrjar hann að svíkja fé út úr félagsmálakerfinu og leiðir það til allskonar misskilnings og vandræða fyrir hann. Að…Lesa meira

true

Borgarbyggð mun innleiða Barnasáttmála SÞ

Félags- og barnamálaráðherra, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi og formaður fræðsluráðs Borgarbyggðar hafa undirritað samstarfssamning þess efnis að Borgarbyggð innleiði Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og stefnir að því að verða barnvænt sveitarfélag. Sveitarfélögin Akureyrarbær, Kópavogur og Hafnarfjörður hafa undirritað slíkan samning áður. „Barnasáttmálinn er áttavitinn sem allt starf með og fyrir börn á að byggja á,“ segir…Lesa meira

true

Lenti í gassprengingu og var lengi vart hugað líf

„Ég sannast sagna átti ekki von á öðru en að þetta yrði bara ósköp venjulegur dagur í vinnunni, reyndar laugardagur og því góður stubbur sem við vinnufélagarnir áttum von á í launaumslagið. Ég var á þessum tíma að læra vélvirkjun og á samningi hjá Þorgeiri og Ellert hér í Slippnum á Akranesi. Við höfðum verið…Lesa meira

true

Kára studio í Grunnskóla Snæfellsbæjar

Nýverið var tekið í notkun nýtt hljóðver í Grunnskóla Snæfellsbæjar. Í hljóðverinu verður hægt að taka upp efni í kennslu og þáttagerð, ásamt því að þar mun útvarp GSNB verða sent út í framtíðinni. Það var Kári Rafnsson, húsvörður við skólann, sem klippti á borðann og vígði þannig hljóðverið sem fékk nafnið Kára-studio. Var það…Lesa meira

true

Firmamót framundan í Akraneshöll

Knattspyrnudómarafélag Akraness blæs til firmamóts í knattspyrnu laugardaginn 24. mars næstkomandi. Leikið verður í Akraneshöllinni og hefst mótið kl. 10:30. Fyrirkomulagið er þannig að leiknar verða 1×12 mínútna leikir, fimm leikmenn í hvoru liði inni á vellinum í einu, þar af einn markmaður, en að sjálfsögðu má hvert lið vera skipað fleirum. Skráning fer fram…Lesa meira

true

Bændahallarbylting

Gunnar Þorgeirsson garðyrkjubóndi í Ártanga í Grímsnesi var í dag kosinn nýr formaður stjórnar Bændasamtaka Íslands. Í kosningu á búnaðarþingi fékk hann 29 atkvæði á móti 21 atkvæði sem sitjandi formaður, Guðrún S. Tryggvadóttir, hlaut. Tveir skiluðu auðu. Í kjölfar formannskjörs var kosið til stjórnar BÍ. Eftirtaldir hlutu kosningu í stjórn: Oddný Steina Valsdóttir Butru…Lesa meira

true

Sveitin Bannað börnum bar sigur úr býtum

Sveitakeppni Bridgefélags Borgarfjarðar lauk í gærkveldi með þátttöku sex sveita. Mikil spenna var við lok mótsins en svo fór að einungis munaði 1,5 stigi á 1. og 3. sæti. Sigurvegarar urðu sveitin Bannað börnum en hana skipuðu þeir Jóhann Oddsson, Kristján Axelsson, Viktor Björnsson, Magnús Magnússon og Guðmundur Steinar Jóhannsson. Í öðru sæti var sveitin…Lesa meira

true

Kallar eftir endurskoðun laga um stéttarfélög og vinnudeilur

Guðjón S Brjánsson þingmaður Samfylkingarinnar lagði í síðustu viku fram fyrirspurn á Alþingi til félags- og barnamálaráðherra um endurskoðun á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Spurði hann hvort fyrirhuguð væri heildarendurskoðun á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80 sem eru frá árinu 1938. „Ef ekki, hyggst ráðherra beita sér fyrir endurskoðun einstakra þátta laganna,…Lesa meira

true

Fiskbúðin Skagafiskur var opnuð í morgun

Fiskbúðin Skagafiskur var formlega opnuð við Kirkjubraut 40 á Akranesi klukkan ellefu í morgun. Margir lögðu leið sína í búðina við opnun og strax var nóg að gera. Í borðinu er mikið úrval af bæði ferskum fiski og fiskréttum auk þess sem hægt var að kaupa tilbúið meðlæti. Sjómaðurinn Kristófer Bjarnason var fyrsti viðskiptavinurinn í…Lesa meira

true

Kynntu úrræði sem bæta eiga stöðu leigjenda

Breyta á húsaleigulögum með það fyrir augum að styrkja verulega stöðu leigjenda hér á landi og gera veru á leigumarkaði að fýsilegum kosti fyrir fólk til langs tíma. Breytingarnar voru kynntar á opnum fundi í Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í gær. Á fundinum kom fram að leigumarkaðurinn á Íslandi stækkaði um 70% á árunum eftir hrun…Lesa meira