Fréttir

true

Loka jarðhitasýningu í Hellisheiðarvirkjun vegna smithættu

Í ljósi þeirrar óvissu sem uppi er vegna kórónaveirunnar á Íslandi hefur Orka náttúrunnar ákveðið að loka tímabundið Jarðhitasýningunni í Hellisheiðarvirkjun. „Starfsemi Jarðhitasýningarinnar er ólík annarri ferðaþjónustu að því leyti að hún er í sama húsi og virkjunarrekstur. Starfsfólk Hellisheiðarvirkjunar sinnir mikilvægri grunnþjónustu með því að halda starfsemi virkjunarinnar gangandi og er gripið til lokunarinnar…Lesa meira

true

Sendu ferðaþjónum leiðbeiningar vegna veirunnar

Ferðamálastofa sendi í morgun út upplýsingar á íslensku og ensku til ferðaþjónustuaðila og ferðamanna varðandi Covid-19 veiruna. Upplýsingarnar eru byggðar á ráðleggingum sóttvarnalæknis og unnar í samvinnu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis og utanríkisráðuneytis. Ferðaþjónustuaðilar eru beðnir að koma upplýsingunum áfram til ferðamanna og síns starfsfólks, prenta eftir atvikum út og hafa sýnilegar. Þannig verður vonandi hægt…Lesa meira

true

Skarðsheiðarhlaup meðal keppnisgreina á Landsmóti 50+ í Borgarnesi

„Undirbúningur gengur afar vel fyrir Landsmót UMFÍ 50+. Við erum reyndar á undan áætlun, búin að raða upp keppnisgreinum og sérgreinarstjórarnir eru klárir. Þarna ættu allir sem hafa gaman af því að hreyfa sig að finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóra Ungmennasambands Borgarfjarðar. Hann og fleiri ungmennafélagar innan raða UMSB standa nú…Lesa meira

true

Sendibíl stolið í Mosfellsbæ

Bílnum á meðfylgjandi mynd var stolið úr Brekkulandi í Mosfellsbæ í fyrrinótt. Bíllinn er hvítur að lit og af gerðinni Mercedes Benz Sprinter og hefur skráningarnúmerið ZM-Y30. Þeir sem hugsanlega hafa orðið varir við bílinn eru beðnir að hafa samband við Jónas í síma 772-3617, eða lögregluna.Lesa meira

true

Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir Stellu í orlofi

Stella er Íslendingum að góðu kunn. Flest kunnum við fjölmarga frasa úr myndinni utanbókar enda er kvikmyndin samofin þjóðarsálinni. Gunnar Gunnsteinsson og Leikfélag Hólmavíkur hafa nú gert leikgerð fyrir svið eftir kvikmyndahandriti Guðnýjar Halldórsdóttur en Gunnar leikstýrir einmitt sýningunni. Sýningin er afrakstur samstarfs Leikfélags Hólmavíkur og Grunn- og tónskólans á Hólmavík. Leikarar og aðstandendur sýningarinnar…Lesa meira

true

Lokanir vegna framkvæmda í Bjargslandi

Götunni Hrafnakletti við Fjóluklett í Borgarnesi verður lokað frá og með 5. mars vegna fráveituframkvæmda og mun lokunin vara út mars. „Á síðasta ári var hafist handa við gatna- og fráveituframkvæmdir í Bjargslandi. Skemmst er að segja frá því að framkvæmdum miðar vel áfram. Næsti áfangi snýr að því að tengja fráveitulagnir við Hrafnaklett og…Lesa meira

true

Illa áttaður í anddyri bankans í Búðardal

Í morgunsárið var komið að sofandi manni í anddyri Arionbanka og Íslandspósts í Búðardal. Í anddyrinu er hraðbanki sem alla jafnan er opið inn í. Ekki var hægt að komast inn í rýmið til mannsins þar sem hann lá fyrir útihurðinni og þurfti talsvert til að vekja hann. Ljóst var að maðurinn hefði verið við…Lesa meira

true

Frumsýna Bót og betrun á sunnudaginn

Leikdeild Skallagríms frumsýnir leikritið Bót og betrun eftir Michael Cooney næstkomandi sunnudag, 8. mars, í félagsheimilinu Lyngbrekku. Um er að ræða farsakenndan gamanleik sem fjallar um mann sem missir vinnuna sína. Til að afla sér peninga byrjar hann að svíkja fé út úr félagsmálakerfinu og leiðir það til allskonar misskilnings og vandræða fyrir hann. Að…Lesa meira

true

Borgarbyggð mun innleiða Barnasáttmála SÞ

Félags- og barnamálaráðherra, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi og formaður fræðsluráðs Borgarbyggðar hafa undirritað samstarfssamning þess efnis að Borgarbyggð innleiði Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og stefnir að því að verða barnvænt sveitarfélag. Sveitarfélögin Akureyrarbær, Kópavogur og Hafnarfjörður hafa undirritað slíkan samning áður. „Barnasáttmálinn er áttavitinn sem allt starf með og fyrir börn á að byggja á,“ segir…Lesa meira

true

Lenti í gassprengingu og var lengi vart hugað líf

„Ég sannast sagna átti ekki von á öðru en að þetta yrði bara ósköp venjulegur dagur í vinnunni, reyndar laugardagur og því góður stubbur sem við vinnufélagarnir áttum von á í launaumslagið. Ég var á þessum tíma að læra vélvirkjun og á samningi hjá Þorgeiri og Ellert hér í Slippnum á Akranesi. Við höfðum verið…Lesa meira