
Ársþing Knattspyrnusambands Íslands var haldið í Klifi í Ólafsvík um helgina, það 74. í röðinni. Að loknum þingstörfum fór lokahóf þingsins fram en þar voru veittar ýmsar viðurkenningar. Var Lúðvík S. Georgssyni færður Heiðurskross KSÍ fyrir störf sín en líf hans hefur verið samofið knattspyrnunni og knattspyrnuhreyfingunni frá unga aldri. Einnig voru fjórar landsliðskonur heiðraðar…Lesa meira








