Fréttir

true

EM hafði töluverð áhrif á verslun og þjónustu

Verslun í júnímáni var ekki ósnortin af Evrópumeistaramótinu í knattspyrnu sem fram fór í Frakklandi og lauk 11. júlí. Finna má merki um neyslubreytingar í tengslum við keppnina í svokallaðri Smásöluvísitölu mánaðarins. Íslendingar gerðu vel við sig í mat og drykk í júní en dagvöruverslun var 8,3% meiri en í sama mánuði í fyrra og…Lesa meira

true

Íslandsmeistaramótið í motocross á Akranesi

Næsta mót Íslandsmeistaramótaraðarinnar í motocross verður haldið á Akranesi á morgun, laugardaginn 16. júlí. Gestgjafar mótsins eru félagar í Vélhjólaíþróttafélagi Akraness og keppt verður í Akrabraut, sem staðsett er upp undir Akrafjalli. Mótið hefst klukkan 10:20 og áætlað er að keppni ljúki kl. 16:30. Vélhjólaáhugamönnum er bent á að ókeypis aðgangur er fyrir áhorfendur.Lesa meira

true

Gray Line Iceland styrkir slysavarnir

Ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line Iceland hefur samið við Slysavarnafélagið Landsbjörgu um að styrkja Safetravel verkefnið um samtals fimm milljónir króna á næstu fimm árum. Markmið Safetravel er að halda úti slysavörnum fyrir innlenda sem erlenda ferðamenn og er samvinnuverkefni Landsbjargar, ferðaþjónustunnar, ýmissa fyrirtækja og stofnana og hins opinbera. Með stuðningi sínum er Gray Line orðið einn…Lesa meira

true

Skagakonur fá til sín norskan sóknarleikmann

Skagakonur hafa styrkt leikmannahópinn fyrir komandi átök í Pepsi deild kvenna. Cathrine Dyngvold er 27 ára norskur sóknarleikmaður sem hefur gengið til liðs við ÍA. Hún lék síðast með liði Kopparbergs/Göteborg  í sænsku úrvalsdeildinni. Skagakonur sitja á botni Pepsi deildar kvenna með aðeins eitt stig og hafa skorað eitt mark í sumar. Það hefur því vantað upp…Lesa meira

true

Í gær hófst keppni á Íslandsmóti ungmenna í hestaíþróttum í Borgarnesi. Þá var keppt í fjórgangi í öllum flokkum yngri flokka. Veðrið lék við keppendur og gesti og gekk keppnin vel fyrir sig í alla staði. Í dag verður keppt í tölti og fimmgangi. Hér að neðan má finna úrslit gærdagsins: Íslandsmót_Forkeppni barnaflokks Íslandsmót_Forkeppni unglingflokks Íslandsmót_Forkeppni…Lesa meira

true

Tímamót í Reykholti

Júlí 2016 er merkismánuður í sögu Reykholts í Borgarfirði. Um þessar mundir eru 20 ár síðan fyrsta sýningin var sett upp í Snorrastofu. Markar það upphaf ferðaþjónustu í stofnuninni. Dagana 22. til 24. júlí munu sóknarbörn og fleiri fagna 20 ára vígsluafmæli Reykholtskirkju, en hún var vígð 28. júlí árið 1996 af herra Sigurði Sigurðarsyni…Lesa meira

true

Ráðamenn hyggjast moka ofan í skurði á Bessastöðum í dag

Með athöfn á Bessastöðum á Álftanesi í dag klukkan 11 verður með táknrænum hætti hafist handa við endurheimt votlendis hér á landi, í verkefni sem hrundið er af stað undir sóknaráætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Í dag munu Ólafur Ragnar Grímsson forseti, Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra og Árni Bragason landgræðslustjóri undirrita samning um verkefnið og hefja…Lesa meira

true

Veiðistaðurinn opnaður í Búðardal

Nýr veitingastaður var opnaður við Vesturbraut í Búðardal í liðinni viku. Ber staðurinn nafnið Veiðistaðurinn og eru Baldur Þórir Gíslason og Harpa Sif Ingadóttir eigendur staðarins. „Veitingastaðurinn er hugsaður sem sjávarréttastaður að megninu til og erum við með einfaldan matseðil, t.d. krækling, fisk og franskar, fiskisúpu og heimagerðan fiskborgara, auk þess sem við ætlum að…Lesa meira

true

Sumarlist 2016 í Hjálmakletti um helgina

Í Hjálmakletti í Borgarnesi var sýnd um síðustu helgi listsýningin Sumarlist 2016 sem er tilraunaverkefni sem unnið er í sjálfboðavinnu af Fluxus Design Tribe og Creatrix í samvinnu við Borgarbyggð. Hugmyndin af verkefninu byggir á einkunnarorðum Creatrix; sköpun, vitund og samvinna ásamt því að hugmynd Fluxus Design Tribe er höfð að leiðarljósi en hún er…Lesa meira

true

Byggðasafn Skagfirðinga hlaut Íslensku safnaverðlaunin

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands afhenti Íslensku safnaverðlaunin 2016 á miðvikudaginn. Þau hlaut að þessu sinni Byggðasafn Skagfirðinga. Í greinagerð valnefndar segir að starfsemi Byggðasafns Skagfirðinga sé fjölþætt og metnaðarfull. Þar er fagmannlega að verki staðið og hver þáttur faglegs safnastarfs unninn í samræmi við staðfesta stefnu og starfsáætlanir. Í safninu er ríkulegur safnkostur sem…Lesa meira