
Riðuveiki hefur verið staðfest á búi í nágrenni Varmahlíðar í Skagafirði. Riðan greindist í sýni úr kind frá bænum Grófargili í Varmahlíð en á bænum eru nú um hundrað fjár. Síðast greindist riða á þessu svæði árið 2019 á bænum Álftagerði. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða. „Bóndinn hafði samband við Matvælastofnun…Lesa meira








