Fréttir

true

Gestirnir sterkari í síðari hálfleik

Skallagrímsmenn máttu játa sig sigraða gegn toppliði Breiðabliks þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Eftir jafnan leik framan af tóku Blikar að síga fram úr í síðari hálfleik og sigruðu að lokum með 14 stigum, 80-94. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafsfjórðungnum þar sem þau fylgdust að nær allan…Lesa meira

true

Mættu ofjörlum sínum

Snæfellskonur mættu ofjörlum sínum þegar þær fengu KR í heimsókn í Stykkishólm á laugardaginn. Gestirnir réðu ferðinni frá fyrstu mínútu og sigruðu að lokum örugglega, 56-83. Snæfellskonur áttu afleitan upphafsfjórðung, þar sem þær skoruðu að eins fimm stig gegn 26 stigum KR-inga. Annað var uppi á teningnum í öðrum leikhluta, þar sem jafnt var á…Lesa meira

true

Endurkomusigur Skallagríms

Skallagrímskonur unnu sterkan endurkomusigur á Breiðabliki, 75-73, þegar liðin mættust í Dominos‘ deild kvenna í Borgarnesi á laugardaginn. Blikakonur voru öflugri í upphafsfjórðungnum. Þegar langt var liðið á hann leiddu þær 8-22, en Skallagrímskonur minnkuðu muninn í sjö stig áður en leikhlutinn var úti, 17-24. Þær voru sterkara liðið í öðrum leikhluta og færðust stöðugt…Lesa meira

true

Fyrst Íslendinga til að hljóta Óskarsverðlaun

Hildur Guðnadóttir tónskáld braut í nótt blað í sögu íslenskrar kvikmyndagerðar þegar hún varð fyrst Íslendinga til að hljóta hin eftirsóttu Óskarsverðlaun. Verðlaunin eru lokapunktur á ótrúlegri vegferð Hildar á liðnum misserum, en hún hefur nú auk Óskarsverðlauna hlotið Emmy, Bafta, Golden Globe og Grammy fyrir kvikmyndatónlist sína. Þessi síðustu verðlaun fær hún fyrir tónlist…Lesa meira

true

Enn meiri innspýting í orkuskipti í samgöngum

Á vegum iðnaðarráðuneytis og umhverfisráðuneytis hefur nú verið ákveðið að veita 200 milljónum króna í styrki til uppbyggingar innviða fyrir orkuskipti í samgöngum. Ákvörðun ráðherranna Þórdísar Kolbrúnar R Gylfadóttur og Guðmundar Inga Guðbrandssonar byggir á tillögum starfshóps sem þau skipuðu síðastliðið haust. Þetta framlag ríkissjóðs kemur til viðbótar við styrki sem úthlutað var á síðasta…Lesa meira

true

Samkeppnishæfni íslenskrar stóriðju könnuð sérstaklega

Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir iðnaðarráðherra hefur kynnt í ríkisstjórn áform um að fá fyrirtækið Fraunhofer / Ecofy til að framkvæma úttekt á samkeppnishæfni stóriðju á Íslandi, með sérstakri áherslu á raforkukostnað. Stefnt er á að úttektinni verði lokið með skýrslu til stjórnvalda fyrir lok maí á þessu ári. Slík óháð úttekt stjórnvalda á samkeppnishæfni stóriðju…Lesa meira

true

Vinna hafin við markaðsstefnumótun í Borgarbyggð

Síðastliðið haust ákvað Borgarbyggð að ganga til samstarfs við markaðsráðgjafafyrirtækið Manhattan við gerð markaðsstefnumótunar fyrir sveitarfélagið. Vinnan hófst í desember síðastliðnum og áætlað er að henni ljúki á vormánuðum 2020. „Verkefnið felst í því að búa til heildstæða markaðsstefnumótun og aðgerðaráætlun fyrir Borgarbyggð sem spennandi stað til að búa á, reka fyrirtæki og sækja heim.…Lesa meira

true

Sigrún skipuð forstjóri UST

Sigrún Ágústsdóttir hefur verið skipuð forstjóri Umhverfisstofnunar. Skipun hennar gildir frá og með síðasta föstudegi. Alls sóttust tólf eftir því að gegna embættinu, þegar það var auglýst í október síðastliðinum. Sigrún lauk cand.jur. prófi frá Háskóla Íslands árið 1995 og hefur starfað af umhverfismálum í um 20 ár. Hún hefur verið sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun frá…Lesa meira

true

Almyrkvi og Klukkan tifar komust áfram

Í gærkvöldi fór fram í Ríkissjónvarpinu fyrra undanúrslitakvöld Söngvakeppni sjónvarpsstöðvanna. Fimm lög kepptu og komust tvö þeirra beint áfram í úrslitakeppni. Annars vegar var það Almyrkvi í flutningi hljómsveitarinnar Dimmu en hins vegar lagið Klukkan tifar, sem þær Ísold Wilberg Antonsdóttir og Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir frá Akranesi fluttu saman. Eins og þær stöllur sögðu í…Lesa meira

true

Safnað fyrir lyftu í ferðaþjónustubíl í Borgarbyggð

Hafin er söfnun meðal einstaklinga, fyrirtækja og stofnana í Borgarbyggð fyrir lyftu til að setja í ferðaþjónustubíl fatlaðra í sveitarfélaginu. Snjólaug Soffía Óskarsdóttir hefur undanfarin tvö ár leyst af við akstur á bílnum og segir hún í samtali við Skessuhorn að brýn þörf sé fyrir að koma lyftu í bílinn til að auðvelda aðgengi fatlaðra…Lesa meira