Fréttir

true

SVFK kærir niðurstöðu héraðsdóms til Landsréttar

Stangaveiðifélag Keflavíkur unir ekki niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness frá 23. janúar síðastliðnum sem vísaði frá dómi máli sem SVFK höfðaði gegn Fiskistofu og Fiskræktar- og veiðifélagi Reykjadalsár í Borgarfirði. Fyrir héraðsdómi krafðist félagið að felld yrði úr gildi stjórnvaldsákvörðun Fiskistofu frá 15. janúar 2019 þar sem felldur var úr gildi samningur sem meirihluti stjórnar Veiðisfélags Reykjadalsár…Lesa meira

true

Viðbúnaður þegar skúta strandaði við Lundey

Mikill viðbúnaður viðbragðsaðila var á ellefta tímanum í gærkvöldi þegar farþegabátur með 18 manns um borð strandaði við Lundey, skammt norðan við Reykjavík. Tiltækar sjóbjörgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu og allt til Akraness voru kallaðar út á hæsta forgangi sem og þyrla Landhelgisgæslunnar. Áhöfn skútunnar tókst skömmu síðar að losa bátinn og var honum fylgt til hafnar…Lesa meira

true

Opna fiskverslun á Akranesi 3. mars

Þriðjudaginn 3. mars næstkomandi verður fiskverslunin Skagafiskur ehf. opnuð við Kirkjubraut 40 á Akranesi. Það eru hjónin Pétur Ingason og Jónheiður Gunnbjörnsdóttir sem ætla að opna verslunina. Pétur og Jónheiður fluttu á Akranes fyrir rétt rúmu ári. Þau eru bæði frá Akureyri en höfðu búið í Hafnarfirði í rúmlega 21 ár áður en þau komu…Lesa meira

true

Hækka styrki til íþróttafélaga

Borgarbyggð hefur hækkað starfsstyrki til íþróttafélaga innan vébanda Ungmennasambands Borgarfjarðar um 25%, samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2020. Fram til þessa hefur styrkurinn tekið mið af neysluvísitölu hvers árs, að því er fram kemur í frétt á vef Borgarbyggðar. Þar segir að hækkunin komi til með að nýtast félögunum vel þar sem kostnaður félaga hafi hækkað undanfarin…Lesa meira

true

Fyrsti hittingur Jóka kvenna á nýju ári

Jókur – félag kvenna í atvinnurekstri á Akranesi og nágrenni var stofnað 2018. Nafn félagsins er með vísun í tröllskessuna Jóku, en félagið er fyrir konur sem eru stjórnendur eða leiðtogar í sínum fyrirtækjum/stofnunum. Tilgangur félagsins er að skapa tengslanet fyrir konur á eða frá Akranesi og úr nærsveitum, styrkja þær í sínum stjórnunarstörfum, almennt…Lesa meira

true

Auður og Auður er ný frumsýning á Sögulofti

Næstkomandi laugardagskvöld verður frumsýnt nýtt verk á fjölum Sögulofts Landnámssetursins í Borgarnesi. Að þessu sinni er það Auður Jónsdóttir rithöfundur sem stígur á stokk. Auður talar við Auði Laxness, ömmu sína, um leið og hún segir söguna Ósjálfrátt. Nú á annan hátt en áður því skáldskapurinn í lífinu breytir því hvernig við skynjum skáldskap. Auður…Lesa meira

true

Langt bataferli framundan hjá Berglindi

Berglind Gunnarsdóttir, körfuknattleikskona og læknanemi, slasaðist alvarlega í rútuslysi suður af Blönduósi 10. janúar síðastliðinn. Hún segir frá þessu í tilkynningu sem hún sendi frá sér á föstudaginn. Læknanemar og hjúkrunarfræðingar, alls nálægt fimmtíu manns, voru á leið norður í land í skíðaferð á tveimur rútum. Önnur rútan valt og voru þrjú flutt með þyrlu…Lesa meira

true

Asahláka og ár ruddu sig

Samhliða úrhellisrigningu og hláku á þriðjudagskvöld og í gær um vestanvert landið ruddu árnar í landshlutanum sig. Klakastíflur hlóðust í ár og læki og vatn flæddi yfir bakka sína. Ekki er vitað til að vegir hafi skemmst svo neinu nemur af þeim sökum. En eitthvað var þó um stífluð vegræsi og að grafist hafi úr…Lesa meira

true

Ræða styttri vaktir í Norðuráli

Fulltrúar þeirra verkalýðsfélaga sem eiga félagsmenn sem starfa hjá Norðuráli hafa undanfarið fundað með forsvarsmönnum fyrirtækisins um kjarasamninga starfsfólks. Sjötti fundurinn var á þriðjudaginn í síðustu viku og hafa viðræðurnar gengið þokkalega, að því er fram kemur á vef Verkalýðsfélags Akraness. Þar kemur einnig fram að á síðustu fundum hafi töluverð áhersla verið lögð á…Lesa meira

true

Leggja til að Þórdís Sif verði sveitarstjóri Borgarbyggðar

Byggðarráð Borgarbyggðar leggur til að gengið verði til samninga við Þórdísi Sif Sigurðardóttir í starf sveitarstjóra Borgarbyggðar. Sú ákvörðun verður lögð fyrir sveitarstjórn á fundi fimmtudaginn 13. febrúar. Þórdís Sif er með BS gráðu í viðskiptalögfræði og ML gráðu í lögfræði. Hún hefur síðustu ár starfað sem sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Ísafjarðarbæjar auk þess að…Lesa meira