Fréttir

true

Fiskeldi nær tvöfaldaðist að umfangi

Framleiðslumet var sett hér á landi í fiskeldi á nýliðnu ári. Var slátrað um 34 þúsund tonnum á árinu samanborið við 19 þúsund tonn árið á undan. Jafngildir það hátt í 80% aukningu á landsvísu. Aukningin á sunnanverðum Vestfjörðum var um 90% milli ára en á Austfjörðum var aukningin 160%. Aukninguna má að langmestu leyti…Lesa meira

true

Flutti til Íslands frá Kaupmannahöfn og byggir upp ferðaþjónustu

Michael Back flutti frá Kaupmannahöfn til Íslands fyrir um einu og hálfu ári og settist þá að í Borgarnesi ásamt Heiðrúnu Helgu Bjarnadóttur og börnunum þeirra tveimur. Við heimkomu tóku þau hjónin við rekstri gistiheimilisins Kríu guesthouse af foreldrum Heiðrúnar. Michael, sem er bifvélavirki og verkfræðingur að mennt, fór auk þess að vinna á bifvélaverkstæðinu…Lesa meira

true

Kynna breytingar á úrgangsþjónustu í Borgarbyggð í kvöld

Stjórnendur Borgarbyggðar hafa undanfarið staðið fyrir fundaröð í sveitarfélaginu. Þar hafa fyrirhugaðar breytingar á úrgangsþjónustu í sveitarfélaginu verið kynntar íbúum. Þær felast í söfnun og eyðingu dýraleifa af lögbýlum, sem hefst 1. febrúar og söfnun lífræns úrgangs frá öllum heimilum í Borgarbyggð, sem fyrirhuguð er frá 1. apríl næstkomandi. Fundaröðin hófst með fundi í Lyngbrekku…Lesa meira

true

„Eitt mesta réttlætismál sem brennur á samfélaginu í dag“

Grái herinn er baráttuhópur innan Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni og berst hópurinn fyrir bættum kjörum allra. Hópurinn hefur nú ákveðið að höfða mál á hendur ríkinu vegna meintra óheimilla skerðinga á lífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins til eftirlaunafólks og verður málið væntanlega þingfest á næstu vikum. „Sjálfboðaliðar hafa unnið hörðum höndum að undirbúningi…Lesa meira

true

Borgarverk bauð lægst í tvö útboðsverk

Hjá Vegagerðinni voru í gær opnuð tilboð í klæðningu vega á Vestursvæði 2020-2021, en þeirri vinnu skal lokið fyrir 1. september. Í verkinu felst 330.000 fermetra yfirlögn með einföldu lagi klæðningar, 66.000 ferm. yfirlögn með kílingu ásamt flutningi stein- og bindiefna. Þrjú tilboð bárust í verkið og átti Borgarverk ehf. lægsta boð, 97,7 milljónir króna.…Lesa meira

true

Menn óttast þjóðgarð í firðinum

Þónokkur fjöldi fólks mætti á fund sem Breiðafjarðarnefnd hélt í Grundarfirði síðastliðið mánudagskvöld. Ljóst er að margir láta sig málefnið varða. Róbert Arnar Stefánsson, sem situr í nefndinni fyrir hönd Náttúrustofu Vesturlands, hélt erindi um lífríki Breiðafjarðar og á eftir honum steig Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar í pontu og sagði frá Þjóðgarðinum Snæfellsjökli og þeim…Lesa meira

true

Matvælastofun beitti fyrirtækið ofríki og gætti ekki meðalhófs

„Það er engin launung að undanfarin sjö ár, allt frá því þetta mál um nautakjötsbökurnar kom upp, hafa reynst mér, fjölskyldu minni, fyrirtækinu, starfsfólkinu og samfélaginu öllu hér í Borgarnesi erfitt,“ segir Magnús Níelsson, matreiðslumaður og eigandi Kræsinga ehf. í Borgarnesi, í samtali við Skessuhorn. Nýlega var gengið frá samkomulagi um greiðslu skaðabóta til handa…Lesa meira

true

Mikill viðbúnaður vegna snjóflóðs í Esjunni

Undanfarar í röðum björgunarsveitarfólks voru á hæsta forgangi kallaðir út klukkan 12:45 í dag vegna snjóflóðs sem féll í hlíðum Esju, í grennd við Móskarðshnjúka. Björgunarsveitir sem og þyrla Landhelgisgæslunnar eru á leið á vettvang.Lesa meira

true

Eftiráskipulagsferli vegna virkjunar í Draghálsá

Skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar auglýsti eftir athugasemdum um tillögu að breytingum á aðalskipulagi í auglýsingu sem m.a. birtist í Skessuhorni 27. nóvember síðastliðinn. Auk þess sendi hann viðeigandi stofnunum beiðni um athugasemdir 2. desember. Tillagan felur í sér þá breytingu að hluti opna svæðisins í landi Dragháls sem nú er skilgreint til sérstakra nota, verði…Lesa meira

true

Upplýsingamiðlun sóttvarnalæknis vegna kórónaveirunnar

Athygli er vakin á upplýsingamiðlun sóttvarnalæknis vegna kórónaveirunnar (2019-nCoV) á vef embættis landlæknis. Þar eru upplýsingar til heilbrigðisstarfsfólks, leiðbeiningar og fræðsla fyrir almenning, upplýsingar og fræðsla tengd alþjóðaflugi og fleira. Sóttvarnalæknir mun birta nýjar og mikilvægar upplýsingar á vef embættisins eftir því sem efni standa til. Upplýsingarnar eru settar fram á bæði íslensku og ensku.…Lesa meira