
Hjá Vegagerðinni voru í gær opnuð tilboð í klæðningu vega á Vestursvæði 2020-2021, en þeirri vinnu skal lokið fyrir 1. september. Í verkinu felst 330.000 fermetra yfirlögn með einföldu lagi klæðningar, 66.000 ferm. yfirlögn með kílingu ásamt flutningi stein- og bindiefna. Þrjú tilboð bárust í verkið og átti Borgarverk ehf. lægsta boð, 97,7 milljónir króna.…Lesa meira








