Fréttir

true

Ökklabrotnaði á afmælisdaginn

Axel Guðni Sigurðsson er 18ára, átti afmæli síðastliðinn laugardag. Afmælisdagurinn leit í fyrstu leit út fyrir að verða sá besti fram að þessu en breyttist á svipstundu í þann versta. „Ég hef sjaldan verið eins ánægður á afmælisdeginum mínum. Ég var að fara keppa í mótorkrossi á Akureyri, það gerist ekki mikið betra. Ég hafði…Lesa meira

true

Franski ferðamaðurinn fannst látinn

Björgunarsveitarfólk fann í gærkvöldi lík franska ferðamannsins sem leitað hafði verið undir jökulhengju í Sveinsgili, norðan Torfajökuls, síðan í fyrrakvöld. Maðurinn var á göngu ásamt félaga sínum þegar slysið varð. Runnu þeir niður ísstál og ofan í jökulána. Sá sem lést barst með ánni undir jökulinn en félaga hans tókst að komast úr ánni og gera…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu fyrir toppliði Blika

ÍA tók á móti sterku liði Breiðabliks í áttundu umferð Pepsi deildar kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi. Liðin hafa háð sína baráttu í sumar á sitt hvorum enda deildarinnar, ÍA var fyrir leikinn á botninum en Breiðablik á toppnum. Því var ljóst að Skagakonur ættu erfiðan leik fyrir höndum og máttu þær að lokum sætta…Lesa meira

true

Núverandi Axlar-ábúendur hyggjast hvorki slátra mönnum né dýrum

Á sextándu öld bjó Björn Pétursson á bænum Öxl í grennd við Búðir á Snæfellsnesi. Hann var kallaður Axlar-Björn og er þekktur fyrir sitt djöfullega eðli. Hann var fyrsti og eini raðmorðingi Íslands. Sagan segir að hann hafi drepið 18 manns áður en upp um hann komst. Þeir sem Björn drap voru ferðamenn sem áttu…Lesa meira

true

Fá ekki rekstrarfé og loka almenningssalernum við Glanna

Búið er að loka og læsa almenningssalerni sem er við bílastæðið að Glanna og Paradísarlaut í Norðurárdal. Staðurinn er afar fjölfarinn ferðamannastaður enda um að ræða eina af fallegustu perlum Borgarfjarðar sem auk þess er vel kynnt í öllum helstu ferðatímaritum. Á skilti við salernishúsið stendur: „Eigendur Hreðavatnsjarðarinnar sjá sér ekki fært að hafa salernið…Lesa meira

true

„Ég er alveg sáttur við vertíðina“

Veðrið lék við Hólmara þegar blaðamann bar að garði í Stykkishólmshöfn síðasta miðvikudag. Þar hitti hann fyrir Guðmund Gunnlaugsson sem var að ísa glænýja grásleppu. Guðmundur rær ásamt eiginkonu sinni Dagbjörtu Bæringsdóttur á Kristbjörgu SH-084. „Við erum búin að fara nokkur ár saman á grásleppu,“ segir Guðmundur, en þau eiga bátinn ásamt tengdasyninum. „Við fórum…Lesa meira

true

Framkvæmdir á lóð FSN

Nú stendur yfir vinna við annan áfanga lóðar Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Verið er að taka stéttina fyrir framan anddyri skólans, setja hitalagnir undir og bæta aðgengi fyrir fólk á hjólastólum. „Það var byrjað á þessum öðrum áfanga í júníbyrjun, skömmu eftir að skóla lauk. Til stendur að vinnu ljúki fyrir Grundarfjarðadaga sem eru síðustu…Lesa meira

true

Fjárframlög til styrkvega „smánarlega lág“

Vegagerðin hefur samþykkt að veita 2,2 milljónum króna til viðhalds styrkvega í Dalabyggð á árinu 2016. Þetta kemur fram í fundargerð byggðarráðs Dalabyggðar frá 6. júlí síðastliðnum. „Byggðarráð þakkar veittan styrk en lýsir yfir vonbrigðum með smánarlega lág fjárframlög til styrkvega. Framlög virðast lækka á sama tíma og tilhneiging er til að færa vegi í…Lesa meira

true

Íslandsmót yngri flokka hefst á morgun

Á morgun, fimmtudaginn 14. júlí, hefst að vindási í Borgarnesi Íslandsmót yngri flokka í hestaíþróttum 2016. Keppni hefst kl. 9.00 með forkeppni í fjórgangi unglinga og stendur yfir til sunnudagsins 17. júlí. Gestgjafar mótsins eru félagar í Hestamannafélaginu Skugga í Borgarnesi. Alls bárust mótsstjórn rúmlega 530 skráningar í Íslandsmótið og því ætti að verða margt…Lesa meira

true

Byrjar að rækta nýja hundategund á Íslandi

„Ertu hrædd við hunda?“ spyr Hjördís Helga Ágústsdóttir blaðamann þegar við kíktum í heimsókn til hennar fyrir helgina. Blaðamaður svarar því neitandi og fær þá hlýjar móttökur af hvítum, loðnum og stórum hundi sem minnir helst á ísbjörn, ekki að blaðamaður hafi séð ísbjörn. Hann hefur fengið nafnið Klaki sem er vel viðeigandi fyrir þennan…Lesa meira