
Jens Heiðar Ragnarsson hefur verið ráðinn slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Bæjarstjórn Akraness samþykkti ráðningu hans einróma á fundi sínum 14. janúar. Alls sóttust ellefu eftir starfi slökkviliðsstjóra þegar starfið var auglýst, en einn dró umsókn sína til baka. Jens Heiðar er reyndur slökkviliðsmaður. Hann hefur starfað í slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar frá árinu 1998…Lesa meira








