Fréttir

true

Vesturlandsvegur opnaður að nýju

Búið er að opna fyrir umferð um Vesturlandsveg í Kollafirði eftir að honum hafði verið lokað vegna alvarlegs umferðaslyss rétt fyrir hádegi í dag. Stór ruslagámur virðist hafa losnað af vöruflutningabíl á leið í norðurátt og lenti gámurinn á tveimur bílum sem komu úr gagnstæðri átt, vörubíl og litlum fólksflutningabíl. Ökumenn beggja bílanna sem fengu…Lesa meira

true

Tveir togarar í loðnuleit með Árna Friðrikssyni

Í byrjun næstu viku mun rannsóknaskipið Árni Friðriksson halda til loðnuleitar og mælinga ásamt tveimur uppsjávarveiðiskipum Bjarna Ólafssyni AK-70 og Hákoni EA-148. Nokkurrar óvissu hefur að undanförnu gætt um þátttöku útgerða í loðnuleit, en nú hafa samningar tekist. Hafrannsóknastofnun hefur ótvírætt hlutverk að stunda stofnmælingar á loðnu líkt og á öðrum nytjastofnum og á grunni…Lesa meira

true

Uppbókað á Mannamót landshlutanna í næstu viku

Mannamót Markaðsstofa landshlutanna í ferðaþjónustu verður haldið í íþróttahúsinu Kórnum í Kópavogi næstkomandi fimmtudag frá klukkan 12-17. Öll pláss fyrir sýnendur á Mannamóti hafa nú verið seld, en 270 pláss voru í boði. Ásóknin sýnir hve mikilvægur viðburður þetta er fyrir íslenska ferðaþjónustu.Lesa meira

true

Hjónanámskeið Þórhallar framundan

„Örfá pláss eru enn laus á fyrsta hjónanámskeið ársins 2020. Það verður haldið í Reykjavík fimmtudaginn 30. janúar og hefst kl. 19.00. Þar með er hafið tuttugasta og fjórða starfsár þessara námskeiða,“ segir í tilkynningu frá Þórhalli Heimissyni. „Námskeiðið byggir á fyrirlestrum og verkefnum og stendur aðeins eitt kvöld. Enginn þarf að tjá sig frekar…Lesa meira

true

Vegurinn um Kollafjörð lokaður vegna slyss

Vesturlandsvegi um Kollafjörð hefur verið lokað vegna alvarlegs umferðarslyss, en greint er frá þessu á vef Vegagerðarinnar. Veginum var lokað að beiðni lögreglu og verður lokaður um óákveðinn tíma. Tengivagn mun hafa losnað af vörubifreið og lent á tveimur bílum.Lesa meira

true

Vindorkugarður á Sólheimum í matsferli

Á vef Skipulagsstofnunar er nú til kynningar tillaga Quadran Iceland Development ehf. um áætlun vegna mats á umhverfisáhrifum vindorkugarðs í landi Sólheima í Laxárdal í Dölum. Í matsferlinu er spáð fyrir um og mat lagt á möguleg áhrif verkefnisins á helstu landfræðilega, líffræðilega og félagslega þætti í umhverfinu. Framkvæmdasvæðið er á 3.200 hektara jörð á…Lesa meira

true

Söngbræður hafa frestað árlegri matar- og sönghátíð

Fyrirhugaðri matarveislu og skemmtilkvöldi Karlakórsins Söngbræðra, sem vera átti í félagsheimilinu Þinghamri á laugardagskvöldið, hefur verið frestað vegna veðurútlits og færðar. Að sögn Sigurgeirs Þórðarsonar stjórnarmanns í kórnum er hluti kórfélaga innilokaður vegna færðar heima hjá sér á Ströndum og því útséð með að þeir geti mætt, jafnvel þótt veður gangi niður fyrir annað kvöld…Lesa meira

true

Gul viðvörun í gildi í dag

Í dag er spáð vaxandi austan- og suðaustanátt og fer að snjóa með morgninum en samtímis hlýnar. Vaxandi norðaustanátt með hríðarveðri norðvestantil á landinu í kvöld, en hægari suðlægur vindur og úrkomuminni víða annars staðar. Hlýnandi veður og hiti 1 til 6 stig með kvöldinu. Á morgun snýst í suðvestan 15-23 m/sek með éljum. Hvassast…Lesa meira

true

Fjölmargir perluðu af krafti

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, stóð fyrir viðburðinum Perlað af Krafti á Akranesi á miðvikudaginn. Alls mættu 180 á svæðið og perluðu 782 armbönd. Einnig safnaðist fyrir 475.160 krónur í sölu á armböndum og öðrum söluvarningi sem er alveg hreint frábært, að sögn forsvarsmanna Krafts. Viðburðurinn, sem haldinn…Lesa meira

true

Bauð leikskólabörnum að skoða jólaljósin

Elínbjörg Katrín Þorvarðardóttir í Stykkishólmi er mikið jólabarn, svo ekki sé meira sagt. Eins og jólabarna er von og vísan þá skreytir Elínbjörg allt hátt og lágt á heimili sínu fyrir hátíðirnar, bæði innan húss og utan. „Ég er mikið jólabarn, var það reyndar ekki þegar ég var lítil en svo breyttist það. Mér þykir…Lesa meira