Fréttir

true

Jón Atli áfram rektor HÍ

Háskólaráð samþykkti á fundi sínum í dag að tilnefna Jón Atla Benediktsson, prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði, í embætti rektors Háskóla Íslands til næstu fimm ára. Jón Atli hefur gegnt embættinu frá árinu 2015. Embætti rektors Háskóla Íslands var auglýst laust til umsóknar í desember og rann umsóknarfrestur út 3. janúar sl. Ein umsókn barst…Lesa meira

true

Stefán og Tryggvi valdir í landsliðið

Skagamennirnir Stefán Teitur Þórðarson og Tryggvi Hrafn Haraldsson hafa verið valdir í hóp A landsliðs karla í knattspyrnu sem leikur tvo vináttuleiki í Bandaríkjunum nú í janúar. Fyrri leikurinn verður gegn Kanada 15. janúar og sá síðari gegn El Salvador 19. janúar. Báðir voru þeir lykilmenn í liði ÍA í Pepsi Max deildinni á liðnu…Lesa meira

true

Þrjár framlengja við ÍA

Knattspyrnukonurnar Erla Karitas Jóhannesdóttir, Sigrún Eva Sigurðardóttir og María Björk Ómarsdóttir endurnýjuðu samninga sína við ÍA skömmu fyrir jól. Allar eru þær fæddar árið 2002 og skrifuðu undir samning sem gildir út keppnistímabilið 2021. Erla Karitas hefur leikið 35 meistaraflokksleiki fyrir ÍA og skorað í þeim fimm mörk. Sigrún Eva á að baki 46 leiki…Lesa meira

true

Skora á þingmenn að styrkja björgunarsveitir um virðisaukaskatt af mannvirkjagerð

Félagar í Björgunarsveitinni Brák í Borgarnesi samþykktu á félagsfundi sínum í gærkveldi áskorun sem þeir hafa sent til allra þingmanna í Norðvesturkjördæmi. Í henni eru þingmenn hvattir til að beita sér fyrir því að tekið verði að nýju upp þingmál númer 136 frá 149. löggjafarþinginu, frumvarp sem heimilar endurgreiðslur til félagasamtaka til almannaheilla vegna mannvirkjagerðar…Lesa meira

true

Ófærð á Snæfellsnesi og afleitt ferðaveður

Á Snæfellsnesi eru nú flestar leiðir ófærar eða þungfærar. Hálka eða snjóþekja er á vegum og sumsstaðar þæfingur og þónokkur snjókoma. Ófært er á Laxárdalsheiði, Bröttubrekku og Holtavörðuheiði. Vatnaleið er einungis fær vel búnum fjórhjóladrifs bílum.Lesa meira

true

Lokað næsta mánudag og þriðjudag í Geirabakaríi

Geirabakarí í Borgarnesi verður lokað vegna framkvæmda í verslun mánudaginn 13. janúar og þriðjudaginn 14. janúar. „Við opnum hress með nýju útliti miðvikudaginn 15. janúar. Hver veit nema við hendum inn einhverjum flottum tilboðum í tilefni af þessum breytingum og af tilsýndum skilningi viðskiptavina við lokuninni,“ segir í tilkynningu frá starfsfólki Geirabakarís.Lesa meira

true

Hvanneyrarkýr skvettu úr klaufunum utan dyra

Síðastliðinn miðvikudagsmorgun urðu bændur á Hvanneyri varir við að kýrnar í fjósinu höfðu verið á útstáelsi. Frá því er greint á Facebook síðu búsins að kýrnar hefðu verið úti nóttina áður,en höfðu þó allar skilað sér inn fyrir morgunmjaltir. Fullsetinn róbóti er í Hvanneyrarfjósi og gaf hann engar vísbendingar í síma um notkunarleysi þá um…Lesa meira

true

Öruggur sigur Skallagríms

Skallagrímskonur lyftu sér upp í fjórða sæti Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik með góðum sigri á Haukum í Borgarnesi í gær. Borgnesingar höfðu yfirhöndina allan leikinn og unnu að lokum öruggan sigur, 73-59. Skallagrímskonur voru mun sterkari í upphafsfjórðungnum og leiddu 19-9 að honum loknum. Þær héldu uppteknum hætti í öðrum leikhluta, voru komnar með…Lesa meira

true

Góður sigur Snæfells

Snæfell bar sigurorð af Breiðabliki í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær, 67-61. Leikið var í Stykkishólmi og höfðu Snæfellskonur undirtökin allan leikinn. Þær voru mun öflugri í upphafsfjórðungnum og leiddu með ellefu stigum að honum loknum, 21-10. Blikar minnkuðu muninn í þrjú stig í upphafi annars leikhluta, en þá tóku Snæfellskonur við sér…Lesa meira

true

Lið FVA áfram í Gettu betur en MB slegið úr leik

Þriðja keppniskvöld spurningakeppni framhaldsskólanna fór fram í gær á Rás-2. Þar kepptu þeir tveir skólar á Vesturlandi sem að þessu sinni skráðu sig til keppni, þ.e. Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi og Menntaskóli Borgarfjarðar í Borgarnesi. Úrslit urðu þau að lið FVA sigraði Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum öruggleg með 24 stigum gegn 10. Liðið fer því áfram…Lesa meira