
Í gær var undirrituð viljayfirlýsing á milli byggðarráðs Borgarbyggðar annars vegar og þriggja verktakafyrirtækja í Borgarbyggð hins vegar um að fara í samstarf um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Bjargslandi í Borgarnesi. Viljayfirlýsingin verður tekin fyrir í sveitarstjórn Borgarbyggðar á morgun til staðfestingar og í kjölfarið verður útbúið samkomulag á milli aðila um nánari útfærslu á samstarfinu.…Lesa meira








